Erlent

Trump segist ekki viðriðinn brottrekstur saksóknarans

Andri Eysteinsson skrifar
Geofrrey Berman hefur verið saksóknari í New York frá því í janúar 2018.
Geofrrey Berman hefur verið saksóknari í New York frá því í janúar 2018. Vísir/Getty

Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist ekki hafa verið viðriðinn, á nokkurn hátt, ákvörðunina um að víkja Geoffrey Berman, saksóknara í Manhattan frá embætti sínu.

Greint var frá því í fréttatilkynningu bandaríska dómsmálaráðuneytisins að Berman myndi stíga til hliðar og Jay Clayton myndi taka við. Berman komst að því að hann ætti að stíga til hliðar þegar hann sjálfur las tilkynninguna.

Berman hafnaði því að stíga til hliðar en í bréfi sem dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, William Barr, sendi Berman í dag kom fram að ráðherrann hafi beðið Bandaríkjaforseta að víkja Berman úr starfi og hann hafi gert það.

„Með yfirlýsingu þinni ákvaðst þú því miður að reka málið í opinberri umræðu í stað þess að vera hliðhollur hinu opinbera. Þar sem þú hyggst ekki segja af þér hef ég beðið forsetann um að víkja þér úr starfi og hefur hann þegar gert það,“ sagði í bréfi Barr til Berman en CNN greinir frá.

Blaðamenn ræddu stuttlega við Bandaríkjaforseta fyrir utan Hvíta húsið áður en hann hélt af stað til Oklahoma þar sem hann heldur kosningafund í kvöld. „Þetta veltur allt á dómsmálaráðherranum. Barr er að vinna í málinu. Þetta er hans svið ekki mitt svið. Hann er mjög hæfur til þess að taka þessa ákvörðun svo þetta veltur á honum. Ég er ekki viðriðinn málið,“ sagði Trump í dag.

Berman hefur nú tilkynnt að hann muni segja af sér og að eftirmaður hans í starfi verði varasaksóknari hans, Audrey Strauss. Berman sagði að embættið væri í góðum höndum undir stjórn Strauss.

Á meðal helstu mála sem voru rannsóknar hjá Berman er mál Jeffrey Epstein og meint kynferðisbrot hans. Verandi saksóknari í málinu hefur hann leitt rannsóknina, og meðal annars gefið það út að Andrés prins hafi verið sérstaklega ósamvinnuþýður þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að greint var frá því að Berman hafi ákveðið að segja af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×