Veður

Hlýjast fyrir norðan í dag

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Norðlendingar bera sigur úr býtum í hitatölulottóinu í dag.
Norðlendingar bera sigur úr býtum í hitatölulottóinu í dag. Vísir/Vilhelm

Hiti á landinu í dag verður á bilinu 6-15 stig. Hlýjast verður á norðurlandi.

Sunnan- og vestanlands verður suðaustanátt, 10-18 metrar á sekúndu. Heldur hægari sunnanátt. Í kringum hádegi bætir í úrkomu.

Norðaustantil verður hægari vindur og bjartviðri framan af degi. Síðdegis bætir í suðaustanáttina, 8-15 metrar á sekúndu og dálítil væta með köflum. Síðan ætti að draga úr vindi og stytta víða upp í kvöld.

Veður næstu daga, samkvæmt vef Veðurstofu Íslands:

Þriðjudagur:

Vestan og suðvestan 8-13 og skúrir, en 15-20 m/s með suðurströndinni framan af degi. Hiti 5 til 13 stig, mildast suðaustantil.

Miðvikudagur:

Suðvestan 10-15 og rigning, en úrkomulítið um landið austanvert. Hiti 6 til 12 stig.

Fimmtudagur:

Sunnan 8-13 og rigning, en úrkomulítið norðanlands. Hlýnar heldur.

Föstudagur:

Suðlæg eða breytileg átt og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 9 til 15 stig.

Laugardagur:

Útlit fyrir suðvestlæga eða breytilega átt með dálitlum skúrum. Milt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×