Ljungberg: Held ég hafi fengið hjartaáfall tvisvar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. desember 2019 17:01 Ljungberg var ekki sáttur með úrslitin á Carrow Road. vísir/getty
Freddie Ljungberg stýrði Arsenal í fyrsta sinn þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Norwich City á Carrow Road í dag. Ljungberg tók við Arsenal af Unai Emery sem var látinn taka pokann sinn á föstudaginn. „Við byrjuðum leikinn mjög vel og þannig vil ég spila fótbolta,“ sagði Ljungberg eftir leikinn. „En við þurfum að verjast skyndisóknum betur. Þeir áttu of auðvelt með að komast í hraðar sóknir.“ Óvíst er hversu lengi Ljungberg stýrir Arsenal, liðinu sem hann lék með í níu ár. „Ég vil að félaginu gangi vel. Að vinna leiki er það sem þetta snýst allt um. Ég vildi vinna þennan leik en því miður tókst það ekki. En það var margt jákvætt í okkar leik,“ sagði Ljungberg. Pierre-Emerick Aubameyang skoraði bæði mörk Arsenal í dag. Það fyrra kom úr vítaspyrnu sem taka þurfti tvisvar. Tim Krul varði fyrri spyrnu Aubameyangs en hana þurfti að endurtaka því varnarmaður Norwich var kominn inn í vítateiginn. Aubameyang skoraði svo úr seinna vítinu og jafnaði í 1-1. „Ég held að ég hafi fengið hjartaáfall tvisvar,“ sagði Ljungberg léttur er hann var spurður út í vítaspyrnurnar. Arsenal hefur ekki unnið í átta leikjum í röð og vann síðast deildarleik fyrir tæpum tveimur mánuðum.
Enski boltinn Mest lesið Börsungar bikarmeistarar eftir framlengingu Fótbolti „Tappinn var settur aftur á kampavínsflöskuna“ Sport Warholm setti fyrsta heimsmetið Sport Varamennirnir sáu um ótrúlega endurkomu Ísaks og félaga Fótbolti Brynjar studdur af KSÍ en Willum af Sundsambandinu Sport Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur til sigurs Sport Atli og Thelma Íslandsmeistarar í fjölþraut Sport „Get ekki sagt að þetta hafi verið auðvelt“ Körfubolti Hollywood-liðið komið upp í B-deild Fótbolti „Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Sjá meira