Sara skaut HK í kaf Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. nóvember 2019 18:29 Sara Odden skoraði tíu mörk. vísir/bára
Haukar lögðu HK að velli, 29-23, þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í kvöld. Haukar eru í 6. sæti deildarinnar með sjö stig, einu sæti neðar og einu stigi minna en HK. Heimakonur byrjuðu leikinn miklu betur og komust í 8-2. Gestirnir unnu sig inn í leikinn og Sigríður Hauksdóttir minnkaði muninn í tvö mörk, 12-10, þegar sjö mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Haukar svöruðu með 4-1 kafla og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11. Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafi og komust sjö mörkum yfir, 19-12. Það bil náði HK ekki að brúa og minnkaði muninn aldrei niður í minna en þrjú mörk. Á endanum munaði sex mörkum á liðunum, 29-23. Sara Odden átti sinn besta leik fyrir Hauka í vetur og skoraði tíu mörk úr tólf skotum. Berta Rut Harðardóttir skoraði sex mörk og Guðrún Erla Bjarnadóttir fjögur. Saga Sif Gísladóttir átti góðan leik í marki Hauka og varði 15 skot (46%). Á meðan var markvarslan hjá HK slök. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst gestanna úr Kópavogi með sex mörk. Díana Kristín Sigmarsdóttir skoraði fimm mörk.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira