Fram skoraði 43 mörk gegn KA/Þór og ÍBV keyrði yfir Aftureldingu í síðari hálfleik Anton Ingi Leifsson skrifar 9. nóvember 2019 15:31 Þórey Rósa var frábær í dag. vísir/bára
Tveimur leikjum er lokið í Olís-deild kvenna í dag. Silfurliðið frá því á síðustu leiktíð, Fram, rúllaði yfir KA/Þór og Afturelding er enn án stiga eftir tap gegn ÍBV á heimavelli. KA/Þór náði að fylgja Fram fyrstu tólf mínúturnar en þá var staðan jöfn, 6-6. Heimastúlkur gáfu svo í og leiddu 21-10 í hálfleik. Í síðari hálfleik gengu þær enn frekar á lagið og enduðu á því að skora 43 mörk gegn átján mörkum gestanna frá Akureyri. Lokatölur 43-18. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði ellefu mörk og Ragnheiður Júlíusdóttir, Steinunn Björnsdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir gerðu allar sjö mörk hver. Hafdís Renötudóttir var með 60% markvörslu. Martina Corkovic var markahæst hjá KA/Þór. Hún gerði sjö mörk en næst kom Martha Hermannsdóttir. Hún gerði þrjú mörk. Fram er með fjórtán stig á toppi deildarinnar en Valsstúlkur eiga leik til góða gegn HK á morgun. KA/Þór er með átta stig í fjórða sætinu. Í Mosfellsbæ vann ÍBV átta marka sigur á Aftureldingu, 31-23, eftir að Afturelding hafði verið einu marki yfir í leikhlé, 11-10. Hrun hjá nýliðunum í síðari hálfleik. Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði tólf mörk fyrir Eyjastúlkur og Sunna Jónsdóttir gerði átta. Þóra María Sigurjónsdóttir skoraði átta mörk fyrir Aftureldingu og Ragnhildur Hjartardóttir bætti við sex. Afturelding er á botninum án stiga en ÍBV er með fimm stig í sjötta sæti deildarinnar.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira