Þungur baggi sem fylgir þeim besta Kristinn Páll Teitsson skrifar 16. ágúst 2019 18:00 Antonio Brown er tilfinningaríkur inni á vellinum. Nordicphotos/Getty
Þegar þrjár vikur eru í að 100. tímabil NFL-deildarinnar hefjist er ein skærasta stjarna deildarinnar á forsíðum blaðanna af röngum ástæðum. Útherjinn Antonio Brown, sem var skipt frá Pittsburgh Steelers yfir til Oakland Raiders fyrr á árinu, hefur brotið reglur nýja félagsins og hótað deildinni að hann hætti ef ekki verður orðið við kröfum hans auk þess að komast í kast við lögin undanfarna tólf mánuði. Þegar skipti Browns yfir í Raiders frá Steelers gengu í gegn þóttu það kjarakaup hjá núverandi vinnuveitendum sem virðast vera að kynnast öllum þeim vandræðum sem fylgja honum þessa dagana. Hann hefur ekki farið leynt með óbeit sína á fyrrverandi liðsfélögum sínum og starfsfólki hjá Pittsburgh Steelers sem endurspeglaðist best í því þegar hann gaf ekki kost á sér í lokaleik tímabilsins í fyrra. Brown virðist því vera búinn að brenna allar brýr að baki sér í Pittsburgh. Það efast enginn um hæfileikana sem Brown býr yfir en efasemdir annarra hafa drifið hann áfram frá fyrsta degi innan deildarinnar. Brown féll niður í sjöttu umferð nýliðavalsins í NFL-deildinni og var valinn með 195. valrétt fyrir níu árum. Eftir að hafa lítið komið við sögu á fyrsta ári sínu innan deildarinnar greip hann tækifærið á því næsta og hefur verið besti útherji deildarinnar undanfarin sex ár. Tvívegis hefur hann verið sá útherji sem er með flesta jarda yfir tímabilið og í fyrra var enginn sem greip fleiri snertimarkssendingar en Brown þrátt fyrir að hann sé yfirleitt með besta varnarmann andstæðinganna á sinni vakt. Brown sem er litríkur karakter mætti með látum í æfingabúðir Raiders því að hann mætti á loftbelg á fyrstu æfingar liðsins en fljótlega fóru vandræðin að skjóta upp kollinum. Hann hefur þótt ófagmannlegur á æfingum, sýnir litla athygli á fundum liðsins og mætir iðulega seint.Brown yfirgaf lið Pittsburgh Steelers í fússi í sumar níu árum eftir að Steelers valdi hann með 195. valrétt í nýliðavalinu árið 2010. Nordicphotos/GettyBrown gat lítið æft eftir að hafa gleymt að klæðast viðeigandi fatnaði í lághitameðferð (e. cryotherapy) sem hann fór í án þess að láta félagið vita þar sem notast er við sérstakan frystiklefa til að auðvelda endurhæfingu. Brown gat því ekki hlaupið í byrjun æfingabúðanna vegna kalsára á fótunum. Stuttu seinna fór Brown að hætta að mæta á æfingar þar sem félagið leyfði honum ekki að koma með sinn eigin hjálm á æfingar. Deildin breytti nýlega reglum um hjálma til að bæta öryggi leikmannanna sem Brown segir að skerði sjón sína. Brown er ekki sá eini sem hefur kvartað, leikstjórnendurnir Tom Brady og Aaron Rodgers þurfa einnig að skipta um hjálm en Brown virtist ekki tilbúinn að aðlagast því. Sjálfur reyndi Brown að líma til gamla hjálminn sinn í von um að fá að notast við hann án árangurs eftir margar tilraunir til að smygla gamla hjálminum inn á völlinn sem endaði með því að hann fór í verkfall og hætti að mæta á æfingar.Stuttu seinna hótaði Brown að hætta í deildinni og reyndi án árangurs að fara með málið fyrir dómstóla eftir að forráðamenn deildarinnar funduðu með Brown og útskýrðu fyrir honum að reglunum yrði ekki haggað. Það leiddi til þess að Brown fór á Twitter og bað fylgjendur sína um hjálp við að finna sérstakan hjálm sem deildin samþykkti að hann myndi fá að nota. Þá hefur Brown einnig ratað á síður fjölmiðlanna vegna vandræða utan vallar. Honum tókst í vor að fá mál gegn sér niðurfellt gegn greiðslu eftir að hann henti húsgögnum niður af fjórtándu hæð í íbúð sinni í Miami síðasta vor þar sem litlu mátti muna að húsgögnin lentu á ungum dreng. Þá steig kokkur fram á dögunum og lýsti yfir því að Brown skuldaði honum um fimm milljónir íslenskra króna fyrir þjónustu sem Brown þáði á síðasta ári, stuttu eftir að þjálfari kærði hann fyrir að hafa neitað að greiða honum um milljón íslenskra króna fyrir æfingabúðir í apríl síðastliðnum.
Birtist í Fréttablaðinu NFL Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? KR - Ármann | Halda KR-ingar sigurgöngunni áfram? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjá meira