Kýldi lögreglumann í andlitið við Egilshöll Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 28. júlí 2019 07:30 Alls voru 74 mál skráð hjá lögreglu frá klukkan 17:00-05:00 í nótt og alls fimm aðilar vistaðir í fangageymslu eftir nóttina. Vísir/Egill
Í nótt var tvisvar óskað eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við Egilshöll í Grafarvogi. Alls voru 74 mál skráð hjá lögreglu frá klukkan 17:00-05:00 í nótt og alls fimm aðilar vistaðir í fangageymslu eftir nóttina. Fyrri tilkynningin barst laust fyrir klukkan hálf eitt og var óskað eftir aðstoð vegna líkamsárásar við tónleika og kvikmyndahöllina. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að maður hafi verið kýldur og tennur hans brotnar. Árásaraðili var þó farinn af vettvangi þegar lögregla mætti. Klukkan 01:20 voru tveir ölvaðir menn handteknir við Egilshöll. Annar þeirra kýldi lögreglumann í andlitið og var kærður fyrir ofbeldi gegn lögreglumanni. Mennirnir voru báðir vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Klukkan rúmlega átta í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna manns í annarlegu ástandi í Hafnarfirði. Hann er grunaður um þjófnað úr verslun í Hafnarfirði, líkamsárás, ofbeldi gegn opinberum starfsmanni og brot á áfengislögum. Maðurinn var vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Laust eftir klukkan eitt í nótt var lögreglu tilkynnt um konu sem réðist á dyraverði við veitingahús í miðbæ Reykjavíkur. Konan var handtekin og færð á lögreglustöð. Hún var látin laus að skýrslutöku lokinni. Systir konunnar var einnig á vettvangi og tálmaði störf lögreglu því hún vildi hjálpa systur sinni. Hún fór ekki að fyrirmælum lögreglu á vettvangi og var handtekinn og færð á lögreglustöð en síðar ekið heim. Konurnar voru báðar ölvaðar.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira