Segir Epstein hafa nauðgað sér þegar hún var fimmtán ára Sylvía Hall skrifar 10. júlí 2019 16:32 Jennifer Araoz ræddi reynslu sína við NBC Today í dag. Skjáskot
Jennifer Araoz var fjórtán ára gömul þegar hún var kynnt fyrir bandaríska milljarðamæringnum Jeffrey Epstein. Ung kona í kringum tvítugt hafði nálgast hana fyrir utan skóla hennar og kynnt hana fyrir Epstein undir því yfirskyni að hann vildi „hjálpa henni“. Araoz hafði misst föður sinn tveimur árum áður og kveðst hafa verið „smá týnd“ í lífinu. Þegar konan nálgaðist hana og fór að bjóða henni í hádegisverði talaði hún vel um Epstein og sagði hann vera miður sín vegna fráfalls föður Araoz og að hann hefði áhuga á að hjálpa henni. Hann væri umhyggjusamur maður. Þegar hún loks hitti Epstein gaf hann henni þrjú hundruð Bandaríkjadali og sagði það vera „smá til þess að hjálpa henni“ áður en hann bætti við að hann sæi um fólk sem honum þætti vænt um. Hrósaði henni fyrir „náttúruleg brjóst“ Í sinni fyrstu heimsókn sagði Araoz Epstein frá draumum sínum um að verða leikkona á Broadway og sagði hann hana vera heppna að kynnast manni eins og sér. Hann gæti hjálpað henni að láta þá drauma rætast. Í kjölfarið fór Araoz að heimsækja heimili Epstein í New York um það bil tvisvar í viku með konunni fyrsta mánuðinn þar sem þær voru í um það bil eina til tvær klukkustundir. Í hvert skipti gaf Epstein henni þrjú hundruð dali undir því yfirskyni að hann vildi hjálpa henni. Misnotkunin hófst þó ekki fyrir alvöru fyrr en Araoz heimsótti hann í fyrsta skipti ein. Hann sýndi henni um húsið áður en hann leiddi hana inn í herbergi sem hann sagði vera sitt uppáhalds. Um var að ræða nuddherbergi þar sem veggirnir voru skreyttir með málverkum af nöktum konum. Á bak við nuddbekkinn mátti svo sjá málverk af naktri konu með dökkt hár og lítil brjóst. Sagði Epstein konuna líkjast Araoz, sem þá var fjórtán ára gömul, og sagðist „fíla lítil brjóst“ áður en hann hrósaði henni fyrir hennar eigin brjóst. Epstein (f.m.) þegar hann var handtekinn á Flórída árið 2008. Hann átti yfir höfði sér lífstíðarfangelsi fyrir brotin sem hann var sakaður um en saksóknarar felldu niður ítarlega ákæru gegn honum.AP/Uma Sanghvi/Palm Beach Post Nudd sem varð að nauðgun Araoz segir Epstein hafa heilaþvegið sig og sannfært hana um að gefa sér nudd á meðan hún klæddist einungis nærfötum. Nuddið myndi svo enda með því að hann fróaði sér og gaf henni að lokum þrjú hundruð dali. „Ég sé um þig, þú sérð um mig,“ sagði Epstein við Araoz eftir fyrsta nuddið. Hann hrósaði henni í hástert, sagði hana fallega og að hann hlakkaði til að hitta hana aftur. Að sögn Araoz varð Epstein ágengari í hvert skipti. Hann hafi byrjað að grípa um brjóst hennar án leyfis og krafðist þess að hún myndi strjúka honum og klípa í geirvörturnar á honum. Það var svo um það bil ári seinna að Epstein skipaði henni að klæða sig úr nærfötunum og setjast ofan á sig á meðan hún nuddaði hann því hann vildi „prófa eitthvað nýtt“. Henni hafi þótt það óþægilegt en þorði ekki öðru en að hlýða eftir að hann hafi ítrekað að hann elskaði hana og vildi sjá um hana. Í þetta skiptið endaði nuddið með nauðgun. Araoz lýsir því að hún hafi verið skelfingu lostin og ekki vitað hvað hún ætti að gera. Hann hafi haldið henni niðri á meðan hann nauðgaði henni og stoppaði ekki þrátt fyrir að hún hafi grátbeðið hann um það. Eftir árásina sagði Epstein henni að hún væri stórkostleg, henni liði stórkostlega og hún hafi ekki gert neitt rangt. Hún fór aldrei aftur til Epstein eftir þetta. Hataði sjálfa sig Þrátt fyrir að hafa aldrei hitt Epstein eftir þetta segir Araoz atvikið hafa markað sig mikið. Hún hætti í skóla til þess að forðast hverfið hans og þjáðist af miklum kvíða og fékk oft kvíðaköst. „Ég eiginlega hataði sjálfa mig eftir þetta,“ sagði Araoz í viðtali við NBC og bætir við að henni hafi liðið eins og hún hafi verið heimskur krakki sem ætti að vita betur. Araoz leitaði aldrei til lögreglu vegna málsins, hún hafi einfaldlega reynt að gleyma því og halda áfram að lifa sínu lífi. Hún játar að hún hafi forðast það að leita til lögreglu af ótta við að lenda sjálf í vandræðum. „Ég var mjög hrædd við Epstein. Hann þekkti mjög mikið af valdamiklu fólki og ég vissi ekki hvað hann myndi gera mér, og ég var ekki viss um að nokkur gæti verndað mig.“ Araoz hefur nú ákveðið að leita til lögreglu og mun lögmaður hennar leggja fram kæru í næsta mánuði vegna málsins.
Bandaríkin Hollywood Mál Jeffrey Epstein MeToo Tengdar fréttir Krefjast afsagnar atvinnumálaráðherra Bandaríkjanna Háværar raddir eru nú uppi um að Alexander Acosta, atvinnumálaráðherra Bandaríkjanna, segi af sér vegna aðkomu hans að máli Jeffrey Epstein, auðkýfings sem sakaður er um mansal á ungum stúlkum. 9. júlí 2019 23:48 Bandarískur milljarðamæringur ákærður fyrir barnamansal Epstein, sem er 66 ára gamall, hefur áður verið sakaður um misnotkun á stúlkum. 7. júlí 2019 13:08 Greiddi fórnarlömbum sínum til að finna fleiri Ákæra gegn Jeffrey Epstein, milljarðamæringi og vini tveggja Bandaríkjaforseta, var opinberuð í New York í dag. 8. júlí 2019 14:16 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira
Krefjast afsagnar atvinnumálaráðherra Bandaríkjanna Háværar raddir eru nú uppi um að Alexander Acosta, atvinnumálaráðherra Bandaríkjanna, segi af sér vegna aðkomu hans að máli Jeffrey Epstein, auðkýfings sem sakaður er um mansal á ungum stúlkum. 9. júlí 2019 23:48
Bandarískur milljarðamæringur ákærður fyrir barnamansal Epstein, sem er 66 ára gamall, hefur áður verið sakaður um misnotkun á stúlkum. 7. júlí 2019 13:08
Greiddi fórnarlömbum sínum til að finna fleiri Ákæra gegn Jeffrey Epstein, milljarðamæringi og vini tveggja Bandaríkjaforseta, var opinberuð í New York í dag. 8. júlí 2019 14:16