Toronto getur orðið meistari í fyrsta sinn í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júní 2019 16:15 Kawhi Leonard hefur farið á kostum í úrslitakeppninni. vísir/getty
Toronto Raptors getur tryggt sinn fyrsta NBA-meistaratitil þegar liðið tekur á móti Golden State Warriors í nótt. Þetta er fimmti leikur liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar. Toronto leiðir einvígið 3-1. Fyrstu tveir leikirnir fóru fram í Scotiabank höllinni í Toronto og skiptu liðin sigrunum á milli sín. Toronto vann svo báða leikina í Oracle höllinni í Oakland og er nú aðeins einum sigri frá fyrsta meistaratitlinum í sögu félagsins. Toronto var stofnað árið 1995 og hefur verið eina kanadíska liðið í NBA-deildinni síðan 2001.Stórstjarnan Kevin Durant æfði með Golden State í gær og vonast er til að hann geti leikið í nótt. Hann hefur ekkert leikið með liðinu síðan í fimmta leiknum gegn Houston Rockets í undanúrslitum Vesturdeildarinnar vegna meiðsla á kálfa. Klay Thompson missti af þriðja leiknum gegn Toronto vegna meiðsla en var stigahæstur Golden State-manna í fjórða leiknum með 28 stig. Golden State varð meistari 2015, 2017 og 2018 en tapaði fyrir Cleveland Cavaliers í úrslitunum 2016. Á þessu blómaskeiði í sögu félagsins hefur Golden State aðeins einu sinni áður lent 3-1 undir í einvígi í úrslitakeppninni. Það var gegn Oklahoma City Thunder í úrslitum Vesturdeildarinnar 2016. Golden State kom þá til baka, vann síðustu þrjá leikina og tryggði sér sæti í úrslitunum. Þetta voru síðustu leikir Durants fyrir Oklahoma en um sumarið gekk hann í raðir Golden State. Fimmti leikur Toronto og Golden State hefst klukkan 01:00 í nótt.
NBA Tengdar fréttir Durant æfði með meisturunum í gær Óvíst er með þátttöku Kevin Durant, skærustu stjörnu ríkjandi NBA meistara Golden State Warriors, þegar liðið mætir Toronto Raptors í leik sem gæti verið síðasti leikur liðsins á tímabilinu. 10. júní 2019 09:00 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira
Durant æfði með meisturunum í gær Óvíst er með þátttöku Kevin Durant, skærustu stjörnu ríkjandi NBA meistara Golden State Warriors, þegar liðið mætir Toronto Raptors í leik sem gæti verið síðasti leikur liðsins á tímabilinu. 10. júní 2019 09:00