Kvennalið KR í körfubolta heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi tímabil í Domino's deild kvenna. Sóllilja Bjarnadóttir samdi í kvöld við KR.
KR var nýliði í Domino's deildinni síðasta sumar en fór alla leið í undanúrslit þar sem liðið tapaði fyrir verðandi Íslandsmeisturum Vals.
Sóllilja kemur til liðsins frá Breiðabliki þar sem hún skoraði 9,3 stig að meðaltali í leik. Hún gerir eins árs samning við Vesturbæjarliðið.
Breiðablik féll úr Domino's deild kvenna á síðasta tímabili.
KR er nú þegar búið að fá til sín landsliðskonuna Hildi Björgu Kjartansdóttur sem er að snúa aftur heim úr atvinnumennsku.
Sóllilja samdi við KR
Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
