Þá segir Skúli að frétt Stefáns Einars um WOW, sem birtist í Morgunblaðinu um miðjan september síðastliðinn og hafi innihaldið rangfærslur, hafi haft neikvæð áhrif á skuldabréfaútboð WOW og alla starfsemi félagsins. WOW fór í þrot í lok mars síðastliðinn.
Skúli svarar orðum Stefáns Einars í færslu á Facebook. Þar segir Skúli að hann hafi ekki ætlað sér að tjá sig um skrif Stefáns Einars, en að hann geti ekki lengur orða bundist eftir orð sem hann lét falla í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Meint aðkoma Airbus
Skúli rekur í færslunni sex atriði sem hann segir Stefán Einar hafa farið rangt með, meðal annars varðandi aðkomu Airbus að rekstri flugfélagsins á síðustu mánuðum og árum þess. Hann segir meðal annars það vera alfarið rangt að Ben Baldanza hafi komið í stjórn WOW air árið 2016 fyrir tilstuðlan eða þrýsting frá Airbus líkt og Stefán Einar heldur fram.Skúli segir það einnig vera alfarið rangt að hann eða aðrir í stjórn WOW hafi viljandi hundsað aðvörunarorð annara í flugheiminum og að helmingurinn af sex milljarða skuldabréfa útboði WOW air hafi verið skuldaleiðrétting eða skuldbreyting. „Þetta er rangt og stenst enga skoðun enda hefur ekkert komið fram sem styður þessa fullyrðingu Stefán Einars,“ segir Skúli.

Fréttin hafði neikvæð áhrif á starfsemi WOW
Skúli segir ennfremur að Stefán Einar hafi áður borið fram alvarlegar ásakanir og rangfærslur í garð WOW air sem hafi ekki átt við rök að styðjast.„Það er ástæðan fyrir því að ég hafði engan áhuga á að ræða við hann um félagið. Alvarlegast var þegar hann fullyrti að WOW air skuldaði Isavia 2 milljarða í stórri forsíðugrein sem Morgunblaðið birti 15. september 2018 þegar við vorum á loka metrunum við að klára umrætt skuldabréfaútboð. Núna liggja fyrir gögn sem sýna svo ekki verður um villst að skuld okkar við Isavia var nær einum milljarði á þessum tíma en ekki tveim milljörðum eins og Stefán Einar fullyrti. Þessi frétt og sú umræða sem skapaðist í framhaldinu hafði mjög neikvæð áhrif á skuldabréfaútboðið og starfsemi WOW air.
Eins og ég hef ítrekað sagt skorast ég ekki undan ábyrgð minni í falli félagsins og klárlega vildi ég óska þess að við hefðum gert ýmislegt öðruvísi. Ég er sannfærður að það hefði verið hægt að bjarga WOW air og þeim miklu verðmætum sem þar lágu ekki síst fyrir þjóðarbúið og íslenska neytendur. Það líður vart sá klukkutími að ég hugsi ekki um WOW air, þann frábæra hóp starfsfólks sem gerði WOW að veruleika, farþega okkar og allt sem við vorum búin að byggja upp í sameiningu,“ segir í færslunni.
Sjá má færslu Skúla í heild sinni að neðan.