Portland tók forystu eftir fjórar framlengingar Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. maí 2019 09:30 Portland Trail Blazers er komið með forskot vísir/getty
Portland Trail Blazers tók forystuna í ótrúlegum leik í undanúrslitaeinvígi sínu við Denver Nuggets í Vesturdeild NBA í nótt. Milwaukee Bucks komst yfir gegn Boston Celtincs í Austurdeildinni. Fjórar framlengingar þurfti til þess að ná fram úrslitum í leiknum og er það jöfnun á lengsta leik í sögunni í úrslitakeppni NBA deildarinnar. Aðeins einu sinni áður hefur þurft að fjórframlengja, það var í 1953 í leik Boston Celtics og Syracuse Nationals. Seth Curry tryggði Portland sigurinn af vítalínunni á síðustu sekúndum fjórðu framlengingarinnar en leiknum lauk með 140-137 sigri Trail Blazers. CJ McCollum skoraði 41 stig fyrir Portland og Damian Lillard 28. Nikola Jokic náði í tvöfalda þrennu, hans þriðja í úrslitakeppninni, með 33 stig, 18 fráköst og 14 stoðsendingar í liði Denver. Jokic gat jafnað leikinn af vítalínunni með 5,6 sekúndur eftir, en hann hitti aðeins úr öðru vítaskoti sínu. Curry fór svo á punktinn fyrir Portland og tryggði sigurinn. Staðan í einvíginu er nú 2-1 fyrir Portland. Það var minni dramatík í Boston þar sem gestirnir í Milwaukee Bucks unnu 123-116 sigur og eru komnir í 2-1 í einvíginu. Giannis Antetokounmpo fór fyrir liði Bucks með 32 stig og 13 fráköst, George Hill bætti við 21 stigi og Khris MIddleton 20. Boston gerði mikið í því að brjóta á Grikkjanum en hann skoraði 16 stig af vítalínunni og átti aðeins 13 skottilraunir í opnum leik. Heimamenn voru stigi yfir í hálfleik en Milwaukee kom sterkara út í seinni hálfleikinn og varð munurinn mest 17 stig í síðasta leikhlutanum.
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira