Westbrook nálægt þrennu en OKC í vandræðum | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. apríl 2019 07:30 Portland er í flottum málum. vísir/getty
Portland Trail Blazers er komið 2-0 yfir í einvígi sínu á móti Oklahoma City Thunder í átta liða úrslitum vestursins í NBA-deildinni í körfubolta en Portland vann annan leikinn í nótt á heimavelli, 114-94. Margir voru búnir að spá því að OKC, sem hafnaði í sjötta sæti vestursins, myndi leggja Portland í þessari seríu og er allt opið enn þá er hún færist til Oklahoma City en Portland er vissulega í fínum málum. Damian Lillard og CJ McCollum fóru á kostum fyrir heimamenn en sá síðarnefndi skoraði 33 stig og Lillard bætti við 29 í þessum frækna sigri Portland-liðsins sem var búið að tapa tíu leikjum í úrslitakeppninni í röð áður en kom að rimmunni gegn OKC. Russell Westbrook hlóð í þrennu í fyrsta leiknum og var nálægt annarri í nótt en hann skoraði fjórtán stig, gaf ellefu stoðsendingar og tók níu fráköst. Hann fór af velli þegar að þrjár og hálf mínúta var eftir en þjálfari OKC kastaði þá inn hvíta handklæðinu og tók allt byrjunarliðið út af. Toronto Raptors og Denver Nuggets jöfnuðu bæði sín einvígi en Toronto vann öruggan sigur á Orlando Magic, 111-82, á heimavelli og fer í stöðunni 1-1 suður til Flórída. Kawhi Leonard skoraði 37 stig fyrir heimamenn og Kyle Lowry, sem að skoraði ekki stig í fyrsta leiknum, setti 22 stig fyrir Toronto. San Antonio Spurs komst mest 19 stigum yfir á móti Denver Nuggets í öðrum leik liðanna í vestrinu í nótt og hefði hæglega getað komist í 2-0 í rimmunni en heimamenn sýndu hetjulega baráttu og komu til baka og unnu, 114-105. Staða í einvíginu er 1-1.
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira