Ólafur Helgi sló öllum við í plús og mínus í átta lið úrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2019 15:00 Ólafur Helgi Jónsson skorar hér körfu i einvíginu. Vísir/Bára
Njarðvíkingurinn Ólafur Helgi Jónsson var hæstur allra leikmanna í plús og mínus í átta liða úrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta. Njarðvíkingar eru úr leik eftir tap í oddaleik á móti ÍR og tölfræðin sýnir fram á það að Ólafur Helgi hafi spilað alltof lítið í einvíginu. Ólafur Helgi spilaði í rúma 101 mínútu í einvíginu og Njarðvík vann með 45 stigum á meðan hann var inn á vellinum. Ólafur var á bekknum í rúmar 98 mínútur og þeim tapaði Njarðvíkurliðið með 51 stigi. Þarna er því 96 stiga sveifla. Ólafur Helgi var með 7,2 stig og 3,2 fráköst í leik í einvíginu en hann hitti úr 6 af 13 þriggja stiga skotum sínum eða 46 prósent. Ólafur setti líka niður öll átta vítaskotin sín. Næstir á eftir Ólafi Helga voru þeir AnttiKanervo hjá Stjörnunni og MikeDiNunno hjá KR. MikeDiNunno spilaði aðeins þrjá leiki og var því með hæsta plús og mínus að meðaltali eða 14 í leik. Í fjórða sætinu var síðan ÍR-ingurinn KevinCapers en hann tók út leikbann í einum leikjanna. ÍR vann alla þrjá leikina eftir að KevinCapers kom til baka úr banninu og hann var +41 í þeim þremur leikjum.Hæsta plús og mínus í átta liða úrslitum: 1. Ólafur Helgi Jónsson, Njarðvík +45 2. AnttiKanervo, Stjarnan +43 3. MikeDiNunno, KR +42 4. KevinCapers, ÍR +41 5. Hlynur Elías Bæringsson, Stjarnan +41 6. Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan +38 7. PavelErmolinskij, KR +34 8. BrandonRozzell, Stjarnan +31 9. Julian Boyd, KR +28 10. Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þ. +25
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira