Fjölskylda drengsins sem hvarf miður sín yfir gabbi síbrotamanns Samúel Karl Ólason skrifar 5. apríl 2019 10:52 Kara Jacobs, frænka Pitzen, segir síðustu daga hafa verið eins og að upplifa hvarf barnsins á nýjan leik.
Fjölskylda Timmothy Pitzen, sem hvarf fyrir átta árum, þegar hann var sex ára, er miður sín eftir að maður laug því að lögregluþjónum að hann væri Pitzen. Maðurinn sagði lögregluþjónum á miðvikudaginn að hann hefði sloppið úr haldi ræningja og vildi komast aftur heim. Í ljós hefur komið að maðurinn, sem sagðist vera fjórtán ára gamall og heita Timmothy Pitzen, er í raun 23 ára gamall síbrotamaður sem heitir Brian Michael Rini. CNN segir honum hafa verið sleppt úr fangelsi í Ohio í síðasta mánuði þar sem hann afplánaði dóm vegna innbrots og skemmdarverka.The man who falsely claimed to be Timmothy Pitzen, a boy who disappeared in 2011, was released from an Ohio prison last month after serving time for burglary and vandalism, court records show https://t.co/zMko5gr85Xpic.twitter.com/Bve45u6BkZ — CNN (@CNN) April 5, 2019 Í maí árið 2011 kom móðir Timmothy í skóla drengsins í Aurora í Illinois og sagði kennurum að upp hefði komið neyðartilvik innan fjölskyldunnar og hún væri þar til að sækja hann. Timmothy var þá sex ára gamall. Þremur dögum síðar fannst hún látin á móteli og virtist hún hafa svipt sig lífi. Timmothy var hvergi sjáanlegur. Seinna kom í ljós að móðir Timmothy hafði farið með hann í dýragarð og skemmtigarð og sáust þau á öryggisupptökum víða um Illinois. Hún skildi eftir sig miða þar sem hún hafði skrifað að Timmothy væri nú í höndum fólks sem myndi annast hann og elska. Hún sagði að hann myndi aldrei finnast. Bílstóll Timmothy var einnig horfinn úr bíl hennar. Foreldrar drengsins höfðu átt í vandræðum og móðir hans glímdi við mikið þunglyndi. Hún hafði minnst einu sinni áður reynt að svipta sig lífi.Kara Jacobs, frænka Pitzen, segir síðustu daga hafa verið eins og að upplifa hvarf barnsins á nýjan leik. Faðir hans og aðrir fjölskyldumeðlimir séu niðurbrotnir. Þetta sagði Jacobs í gærkvöldi þegar hún og Alana Anderson, amma Pitzen, ræddu við fjölmiðla eftir að í ljós kom að ekki var um drenginn að ræða. Þó þeim hafi margsinnis borist ábendingar um að Pitzner hafi fundist hafi þetta tilvik verið það efnilegasta hingað til. Anderson sagðist alltaf hafa haldið í þá von að þegar Pitzen væri orðinn nógu gamall myndi hann finna fjölskyldu sína á nýjan leik, ef þau gætu ekki fundið hann. Hún sagðist viss um að hann gæti það því hann sé mjög snjall.Hér má sjá myndbönd frá blaðamannafundinum í gær og viðtal við æskuvin Pitzner.
Bandaríkin Tengdar fréttir Pilturinn er ekki barnið sem hvarf fyrir átta árum Lífsýnapróf leiddu það í ljós. 4. apríl 2019 21:15 Táningur segist vera barn sem hvarf fyrir átta árum Lögregluembætti í Illinois, Kentucky og Cincinnati í Bandaríkjunum eru á yfirsnúningi eftir að táningur steig fram sem segist vera barn sem hvarf fyrir átta árum. 4. apríl 2019 11:29 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira
Pilturinn er ekki barnið sem hvarf fyrir átta árum Lífsýnapróf leiddu það í ljós. 4. apríl 2019 21:15
Táningur segist vera barn sem hvarf fyrir átta árum Lögregluembætti í Illinois, Kentucky og Cincinnati í Bandaríkjunum eru á yfirsnúningi eftir að táningur steig fram sem segist vera barn sem hvarf fyrir átta árum. 4. apríl 2019 11:29