Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Smári Jökull Jónsson skrifar 4. september 2026 07:20 Lindsay Clancy ásamt verjanda sínum Kevin Reddington. Vísir/Getty Dómarinn í morðmáli Lindsay Clancy hefur enn á ný biðlað til kviðdóms að reyna að ná samstöðu um niðurstöðu eftir mikla dramatík í dómsalnum í gær. Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín á heimili fjölskyldunnar í Massachusetts í janúar árið 2023.
Kviðdómendur hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í málinu í sex daga. Dómarinn William Sullivan bað þá í gær um að leggja sannfæringu sína ekki til hliðar en þeir hafa varið þrjátíu og fimm klukkustundum í að reyna að ná niðurstöðu. Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín í janúar árið 2023 en hún reyndi í kjölfarið að svipta sig lífi með því að stökkva út um glugga á annarri hæð og lamaðist fyrir neðan mitti við fallið. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Neitaði að víkja kviðdómanda frá málinu Spennan magnaðist til muna í dómssal í gær þegar formaður kviðdómsins sendi Sullivan dómara orðsendingu þar sem fram kom að einn kviðdómenda ætlaði ekki að fara eftir reglum um sönnunarbyrði og hugtakið „hafið yfir skynsamlegan vafa“ (e. beyond reasonable doubt). Verjandinn Kevin Reddington.Vísir/Getty Verjendur Clancy fóru fram á að umræddum kviðdómanda yrði vikið frá málinu og mátti heyra andvörp í dómssal þegar verjendur lögðu fram beiðnina. Verjandinn Kevin Reddington og saksóknarinn Jennifer Sprague áttu í hörðum orðaskiptum við Sullivan dómara, sem fréttamenn í salnum gátu ekki heyrt, en sáu svipbrigði og handahreyfingar sem bentu til gremju hjá lögmanni Clancy. Vildi ekki taka afstöðu Í kjölfarið útskýrði Reddington fyrir Clancy hvað hefði gerst og var Clancy ekið í hjólastól sínum af verjandanum til að taka þátt í samtali við dómarann. Sullivan dómari ákvað að kviðdómandinn fengi að sitja áfram. „Mér finnst ekki rétt af mér að taka afstöðu með annarri hliðinni í umræðum kviðdóms,“ sagði Sullivan í dómssal. Dómarinn William Sullivan.Vísir/Getty Að þessu loknu átti dómarinn samtal við hvern og einn kviðdómanda og minnti á að þau yrðu einróma að telja að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að Clancy væri sek til að geta sakfellt hana. Fyrstu vísbendingar um ósætti Kviðdómurinn samanstendur af níu konum og þremur körlum en þetta er í þriðja sinn sem hann sendir dómaranum orðsendingu um að ekki náist einróma niðurstaða. Í gær komu hins vegar í fyrsta sinn fram vísbendingar um ósætti innan hópsins. Málið vegna kviðdómandans verður rætt að nýju þegar réttarhöldin halda áfram eftir hádegið í dag. Nái kviðdómurinn ekki niðurstöðu getur dómarinn lýst réttarhöldin ógild en þá þyrfti ákæruvaldið að taka ákvörðun um hvort málið verði tekið fyrir að nýju. Verði Clancy sakfelld fyrir morð á hún yfir höfði sér lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Verði hún hins vegar sýknuð á grundvelli veikinda gæti hún verið vistuð á viðeigandi stofnun.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira