Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Freyja Þórisdóttir skrifar 5. september 2026 11:21 Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði mál Lindsay Clansey vera „hræðilegan harmleik“. Getty Mál fyrrverandi hjúkrunarfræðingsins Lindsay Clancy hefur vakið gríðarlega athygli fólks um allan heim og þá sérstaklega í Bandaríkjunum en þar hefur almenningur skipst í tvær fylkingar, þeir sem telja hana seka og þeir sem telja svo ekki vera. Athyglin hefur verið slík að sjálfur forseti Bandaríkjanna lagði orð í belg.
Hin 36 ára gamla Lindsay Clancy verður áfram í haldi og dvelur jafnframt áfram á geðsjúkrahúsinu þar sem hún hefur verið vistuð undafarið en réttarhöldunum lauk í gær án niðurstöðu. Næstu réttarhöld eru áætluð þann 29. september en óljóst er hvernig málinu mun vinda fram. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Óljóst hvert framhaldið verður Saksóknarar gætu valið úr ýmsum möguleikum, þar á meðal að halda önnur réttarhöld eða gera samkomulag við Clancy um sakfellingu vegna þess að hún hafi kyrkt börnin sín þrjú, hina fimm ára gömlu Coru, hinn þriggja ára gamla Dawson og hinn átta mánaða gamla Callan, á heimili þeirra í Massachusetts. Clancy hefur ekki á nokkrum tímapunkti í réttarhöldunum neitað því að hafa drepið börnin sín árið 2023 en lögmenn hennar hafa haldið því fram að hún þjáist af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Hún ætti því ekki að vera dæmd sek fyrir morð af fyrstu gráðu. Ellefu af tólf sammála Samkvæmt bandarískum lögum verður kviðdómur að vera einróma sannfærður „án skynsamlegs vafa“ um að einhver sé sekur til að sakfella hann fyrir glæp. Það hefur ekki enn tekist í máli Clancy en kviðdómurinn hefur þrisvar sinnum verið látinn ræða málið en án árangurs. Þá hafa lögmenn Clancy haldið því fram að einn kviðdómenda hefði sýnt mögulega hlutdrægni gegn fólki sem glímir við geðsjúkdóma, án þess að útskýra það nánar. Þeir vildu dómarinn ætti hið minnsta að ræða náðar við kviðdómandann eða jafnvel vísa honum frá áður en réttarhöldin yrðu dæmd ógild. Í frétt BBC er haft eftir verjandanum Kevin Reddington að hann teldi að 11 af 12 kviðdómendum hefðu komist að niðurstöðu sem hefði verið Clancy í hag ef ekki hefði verið fyrir þann eina sem stóð á móti. Hræðilegur harmleikur Líkt og fyrr segir er málið í brennidepli fjölmiðlaumfjöllunar í Bandaríkjunum eins og þau leggja sig en Donald Trump forseti fann sig knúinn til að tjá sig um málið á dögunum, föstudaginn 4. september, og kallaði það „hræðilegan harmleik“. „Þetta er skelfilegt. Þetta er hræðilegur harmleikur,“ er haft eftir honum í staðarmiðlum á borð við The Hill en hann hafði verið spurður út í mál Clancy við undirritun forsetatilskipunar. „Sjáið til, hún gerði hræðilegan, hræðilegan hlut. Gæti ekki verið verra, en þið munuð komast að því hvaða verð hún þarf að greiða. Þetta verður henni dýrkeypt. Það verður geðsjúkrahús eða fangelsi eða eitthvað, en ég býst við að það verði önnur réttarhöld.“
Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Sjá meira