Valur endurheimti toppsætið | KA/Þór tveimur stigum frá úrslitakeppnissæti Anton Ingi Leifsson skrifar 22. janúar 2019 21:30 Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Vals. vísir/ernir
Valur endurheimti toppsætið í Olís-deild kvenna með þriggja marka sigri á Stjörnuni í kvöld, 19-16. Haukar rúlluðu yfir botnlið Selfoss og KA/Þór vann nýliðaslaginn gegn HK. Jafnræði var í Origo-höllinni í fyrri hálfleik þar sem Valur og Stjarnan mættust en Valur var 9-8 yfir í hálfleik. Þær höfðu svo betur að lokum með þremur mörkum en ekki mikið skorað í leiknum. Lokatölur 19-16. Með sigrinum er því Valur aftur komið á topp Olís-deildarinnar en Fram var þar um stundarsakir eftir sigurinn gegn ÍBV um helgina. Valur er með 21 stig en Fram 19. Stjarnan er í sjötta sætinu með níu stig. Haukar lentu í engum vandræðum með botnlið Selfoss en Haukarnir unnu þrettán marka sigur 33-20. Þær tóku völdin strax í upphafi leiks og leiddu í hálfleik, 15-12. Þær rauðklæddu úr Hafnarfirði eru í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig en Selfoss er í bullandi vandræðum. Liðið er á botni deildarinnar með fjögur stig, þremur stigum á eftir HK sem er í sætinu fyrir ofan. KA/Þór vann svo nýliðaslaginn gegn HK, 19-17, í miklum spennuleik norðan heiða en staðan í hálfleik var 11-8. HK gat minnkað muninn í eitt mark er um mínúta var eftir en tókst það ekki og því fór sem fór. Díana Kristín Sigrmarsdóttir var lang atkvæðamest í liði HK en hún skoraði átta mörk. Sigríður Hauksdóttir gerði fjögur. Í liði KA/Þór var það Katrín Vilhjálmsdóttir esm gerði sjö mörk og Sólveig Lára Kristjánsdóttir fjögur. Eftir sigurinn er KA/Þór þó áfram í fimmta sæti deildarinnar en nú með þrettán stig. Liðið er tveimur stigum frá úrslitakeppnissæti en ÍBV er með fimmtán stig í fimmta sætinu. HK er í sjöunda sæti með sjö stig.
Olís-deild kvenna Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira