Ekkert fékkst upp í 25 milljóna gjaldþrot Hróa veitinga Birgir Olgeirsson skrifar 24. janúar 2019 13:20 Félagið var lýst gjaldþrota árið 2014. Vísir/Getty
Skiptum er lokið á þrotabúi Hróa veitingar ehf., sem rak pizzustaðinn Hróa Hött við Hringbraut, en fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta í nóvember árið 2014. Lýstar kröfur í búið námu 25 milljónum króna en engar eignir fundust í búinu og var skiptum lokið í mars árið 2015 en félagið var afskráð í dag. Þrír veitingastaðir með nafni Hróa Hattar voru reknir hér á landi fyrir nokkrum árum, á Hringbraut í Reykjavík, Smiðjuvegi í Kópavogi og Skólavegi í Vestmannaeyjum, en mismunandi félög héldu utan um reksturinn sem einnig fóru í þrot, líkt og blaðamaður Morgunblaðsins rakti skilmerkilega árið 2014. Þar á meðal ÁÁ veitingar ehf., í eigu Ásgeirs Ásgeirssonar, sem hélt áður utan um rekstur Hróa Hattar á Hringbraut. Það félag varð gjaldþrota á árinu 2012 en ekkert fékkst upp í lýstar kröfur sem námu 77,6 milljónum króna. Félagið Salt og gott ehf. hélt utan um rekstur útibúsins á Smiðjuvegi en félagið var úrskurðað gjaldþrota í maí árið 2013 en 1,3 milljónir fengust upp í lýstar kröfur sem námu 59 milljónum króna. Áður var það félagið Lackland ehf. sem hélt utan um rekstur Hróa hattar á Smiðjuvegi fram til ársins 2012. Ekkert fékkst upp í 223 milljóna króna gjaldþrot félagsins.
Gjaldþrot Veitingastaðir Mest lesið Fluttur til Austin vegna útrásar súkkulaðismjörsins Viðskipti innlent Þóra kveður Stöð 2 Viðskipti innlent „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Atvinnulíf Garðar Hannes hættir hjá Eik fasteignafélagi Viðskipti innlent Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Samstarf Klara frá Kerecis til Arterna Biosciences Viðskipti innlent Líkleg tölvuárás á Toyota Viðskipti innlent Notendalausnir Origo verða Ofar Viðskipti innlent „Hef einstaklega gaman af þessari stanslausu niðurlægingu“ Atvinnulíf Verkefnin í fyrra: Stelpupabbar, forðunarhegðun, mismunun og áherslan á jákvæðnina Atvinnulíf Fleiri fréttir Þóra kveður Stöð 2 Klara frá Kerecis til Arterna Biosciences Notendalausnir Origo verða Ofar Líkleg tölvuárás á Toyota Garðar Hannes hættir hjá Eik fasteignafélagi Fluttur til Austin vegna útrásar súkkulaðismjörsins Sjá fótgangendur með endurskin fimm sinnum fyrr Furðar sig á blekkingarbrigslum Heimildarinnar Play telur ríkið geta sparað sér tugi milljóna Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Hafa bæst í eigendahóp PwC Ráðin sviðsstjóri hafnarinnviða Ráðinn nýr framkvæmdastjóri Domino's á Íslandi Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Sjá meira