Yfirdyravörðurinn sagðist hafa farið á Shooters ásamt þremur kollegum til að aðstoða dyraverðina á Shooters vegna fyrrnefndra fjögurra.
„Þeir eru beðnir um að fara, voru víst með dónaskap og læti. Síðan eru einhver orðaskipti. Þeir fara út. Það eru orðaskipti og æsingur en gerist samt ekki neitt.“
Þannig hafi þetta gengið í nokkrar mínútur en þeir svo yfirgefið svæðið og gengið upp Austurstræti. Hann hafi hinkrað í nokkrar mínútur en í framhaldinu lagt leið sína í 10/11 í Austurstræti. Á leiðinni til baka sér hann hreyfingu við Café París á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis, við hlið Shooters.
„Ég sé að þeir eru frekar margir, líklega fjórir með hettur, hlaupa upp tröppurnar og ráðast á strákana,“ sagði yfirdyravörðurinn.

Hljóp á Austur eftir aðstoð
Árásarmennirnir hefðu verið að reyna að berja til dyravarðanna sem reyndu að loka dyrunum. Hann hafi metið það þannig að það væri að takast og ákveðið að hlaupa í átt að skemmtistaðnum Austur og fá frekari liðsauka. Hann hafi ekki lagt í alla mennina eins síns liðs.„Þegar við komum þá er þessu að ljúka. Einn sem er að vinna þarna er með þrjá í kringum sig og nær að koma sér bak við bílinn,“ sagði yfirdyravörðurinn á English.
Árásarmennirnir hafi séð að fleiri dyraverðir væru mættir og hlaupið af vettvangi.
Dyravörðurinn sem lá í götunni á Austurstræti hafi verið tjúnaður og ekki vitað hvar hinn dyravörðurinn var. Þeir hafi farið inn og fundið hinn dyravörð Shooters liggjandi aftast á staðnum við bakdyrnar, liggjandi á maganum við tröppur. Þar hafi verið brotin rúða á hurð.
Artur Pawel Wisocki er sakaður um að hafa barið umræddan dyravörð og í framhaldinu elt hann inn á Shooters og hrint honum. Artur játar líkamsárás en ekki hrindingu með afleiðingunum sem urðu þær að dyravörðurinn lamaðist fyrir neðan háls.
Yfirdyravörðurinn á English lýsti því hvernig þeir hefðu fundið dyravörðinn liggjandi. Hann hefði augljóslega fundið til mikils sársauka og beðið mennina um að hreyfa til fætur sína. Það hafi þeir gert en áfram fengið beiðni frá dyraverðinum um að færa til fæturna í tröppunum.
Þá fyrst hafi þeir áttað sig á alvarleika málsins. Að dyravörðurinn fyndi ekki fyrir fótum sínum.

Neitar að hafa hrint dyraverðinum
Aðalmeðferð í málinu hófst í morgun þar sem ákærðu hafa gefið skýrslu sem og annar dyravörðurinn sem slasaðist. Ákærðu játa að stærstum hluta en Artur neitar að hafa hrint dyraverðinum sem lamaðist við fallið. Skýrsla var tekin af dyraverðinum sem lamaðist á endurhæfingardeild Landspítalans en fjölmiðlar fengu ekki að vera viðstaddir skýrslutökuna.Artur Pawel Wisocki er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás aðfaranótt sunnudagsins 26. ágúst síðastliðinn fyrir utan næturklúbbinn Shooters í Austurstræti sem leiddi til þess að dyravörður á staðnum lamaðist fyrir neðan háls. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn eftir árásina.
Artur hefur játað að hafa veitt dyraverðinum hnefahögg en neitar annars sök er varðar líkamsárásina og afleiðingar hennar. Hann er sakaður um að hafa eftir hnefahöggið í andlitið elt dyravörðinn þegar hann reyndi að komast undan.
Hrinti hann honum þannig að dyravörðurinn féll fram fyrir sig, niður tvö þrep, höfuð hans skall á hurð og hann féll á magann á gólfið. Þar á Artur að hafa veitt honum fleiri hnefahögg og spörk bæði í andlit og höfuð.
Afleiðingarnar voru meðal annars margþætt brot á fimmta hálshryggjarlið, mænuáverkar og meðfylgjandi lömun fyrir neðan háls.
Þá er Artur ásamt öðrum manni, Dawid Kornacki, ákærður fyrir aðra sérstaklega hættulega líkamsárás sama sömu nótt á sama stað. Tveir aðrir menn eru taldir hafa verið aðilar að árásinni en þeir eru óþekktir.
Artur og Dawid eru báðir ákærðir fyrir endurtekin hnefahögg í andlit, höfuð og líkama auk þess að hafa sparkað í hann, þar á meðal þrjú hnéspörk í andlit í tilfelli Arturs. Héldu þeir honum, samkvæmt því sem segir í ákæru, svo hann kæmist ekki undan.
Karlmaðurinn sem lamaðist fyrir neðan háls fer fram á 123 milljónir króna í miskabætur af hendi Arturs. Hinn karlinn krefst 2,5 milljóna króna í miskabætur frá þeim Artur og Dawid.