KR áfram á toppnum │Fjörutíu stiga sigur Vals Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. janúar 2019 21:05 KR-ingar eru að gera gott mót. fréttablaðið/sigtryggur ari
KR heldur toppsætinu í Domino's deild kvenna eftir tíu stiga sigur á Haukum. Valur burstaði Skallagrím og Keflvíkingar höfðu betur gegn Stjörnunni. KR er áfram eitt á toppi Domino's deildar kvenna eftir 80-70 sigur á Haukum í Hafnarfirði í kvöld. Kiana Johnson átti stórleik fyrir KR og skoraði 35 stig. Vesturbæingar lögðu grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta en heimakonur í Haukum náðu aðeins að setja níu stig í fyrsta leikhlutanum á meðan KR skoraði 22. Staðan í hálfleik var 30-37 fyrir KR. Nýliðar KR eru því með 24 stig eftir 15 leiki. Á Hlíðarenda sáu Skallagrímskonur aldrei til sólar þegar þær sóttu heimakonur í Val heim. Valur vann alla leikhlutana í leiknum og leikinn sjálfan svo sannfærandi 83-43. Heather Butler var stigahæst Valskvenna með 16 stig en Dagbjört Dögg Karlsdóttir og Ásta Júlía Grímsdóttir fylgdu þar fast á eftir með 14 og 12 stig hvor. Allir leikmenn vals nema einn komust á blað í kvöld. Stjarnan sótti Keflvíkinga heim í leik sem byrjaði á mikilli vörn. Aðeins 19 stig voru skoruð í fyrsta fjórðungnum en staðan að honum loknum var 7-12 fyrir Stjörnunni. Jafnt var með liðunum alveg fram í síðasta fjórðunginn en þá stigu heimakonur á bensíngjöfina og unnu að lokum 68-59 sigur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Í beinni: Fram - Vestri | Heldur sigurganga Ísfirðinga áfram? Íslenski boltinn „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Sjá meira