Sóknarleikurinn hefur tekið framförum Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. nóvember 2018 14:30 Axel Stefánsson landsliðsþjálfari.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta lék síðasta æfingaleik sinn fyrir undankeppni HM 2019 í gær þegar liðið tapaði með sex mörkum, 29-23 gegn B-liði Noregs. Íslenska liðið lék tvo æfingaleiki í Noregi, vann sex marka sigur á Kína en átti kaflaskiptan dag gegn Noregi í gær. „Þetta var kaflaskipt hjá okkur, það var mikill stígandi í leiknum gegn Kína. Þær eru með öðruvísi lið sem það tók tíma að læra inn á en við gerðum vel í að klára þann leik. Gegn Noregi fórum við illa með færin okkar framan af og eftir það vorum við alltaf að eltast við þær þótt mér hafi fundist sigurinn full stór.“ Þrátt fyrir að þetta hafi verið B-lið Noregs var þetta gríðarlega sterkur mótherji. „Þetta voru frábærir leikmenn sem við vorum að mæta, leikmenn úr toppliðum í Danmörku sem eru reglulega í Meistaradeildinni. Markvörðurinn þeirra er í fremstu röð og hún var okkur erfið, tók þrjú hraðaupphlaup og eitt vítaskot í fyrri hálfleik. “ Að mati Axels var hægt að byggja margt á þessum leikjum fyrir undankeppnina sem hefst eftir viku. „Breiddin í liðinu er að aukast sem er ánægjulegt og sóknarleikurinn gekk lengst af vel. Við gerðum ekki mörg mistök en fórum illa með færin okkar. Við erum að byggja upp nýtt lið í rólegheitunum og erum að reyna að taka næsta skref.“
Birtist í Fréttablaðinu Handbolti Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Fótbolti Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira