Hafa fundið annan flugrita flugvélarinnar Samúel Karl Ólason skrifar 1. nóvember 2018 08:03 Flugritinn mun hafa fundist í um 500 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sambandið við flugvélina rofnaði og á um 30 metra dýpi. AP/Fauzy Chaniago
Kafarar hafa fundið annan flugrita Lion Air flugvélarinnar sem hrapaði í hafið á fyrr í vikunni svo 189 manns létu lífið. Um er að ræða flugritann sem heldur utan um gögn eins og hæð, hraða og stefnu flugvélarinnar og á eftir að finna flugritann sem tekur upp samtöl áhafnarinnar. Leitin að honum stendur enn yfir. Fundurinn er mikilvægur rannsakendum svo hægt verði að komast að því af hverju flugvélin hrapaði. Þarlend sjónvarpsstöð sýndi nótt myndskeið af tveimur köfurum koma upp á yfirborðið með appelsínugulan flugrita og koma honum um borð í slöngubát. Annar þeirra sagðist hafa þurft að grafa eftir tækinu eftir að búið var að leita flugritann uppi með sendingum frá honum. Þá segir hann mikinn straum á svæðinu hafa gert leitina erfiða.Flugritinn mun hafa fundist í um 500 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sambandið við flugvélina rofnaði og á um 30 metra dýpi. Flugvélin, sem var ný og af gerðinni Boeing 737 MAX8, hrapaði skömmu eftir flugtak á mánudaginn. Um versta flugslys Indónesíu í rúma tvo áratugi er að ræða. Bráðabirgðagögn benda til þess að hraði flugvélarinnar hafi verið óhefðbundinn og hæðin sömuleiðis. Leitarmenn telja sig einnig hafa fundið skrokk flugvélarinnar. Það hefur þó ekki verið staðfest enn. Rannsakendur segjast ætla að skoða gögn flugritans eins fljótt og auðið er.
Asía Fréttir af flugi Tengdar fréttir Ætla ekki að kyrrsetja vélar af sömu tegund og sú sem hrapaði Lion Air rekur ellefu Boeing 737 Max 8 flugvélar. Sama gerð og sú sem hrapaði í nótt. 29. október 2018 19:30 Vélin sem hrapaði var glæný Talið er afar ólíklegt að einhver þeirra 189 sem um borð voru í flugvél Lion Air sem brotlenti í sjóinn skömmu eftir flugtak frá Jakarta í Indónesíu í nótt. Flugvélin sem hrapaði var glæný. 29. október 2018 14:29 Telja sig hafa fundið skrokk flugvélarinnar Leitarmenn telja sig hafa fundið staðsetningu flaksins og er þess nú beðið að það verði staðfest, þegar kafarar komast á svæðið. 31. október 2018 07:44 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Fleiri fréttir Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Sjá meira
Ætla ekki að kyrrsetja vélar af sömu tegund og sú sem hrapaði Lion Air rekur ellefu Boeing 737 Max 8 flugvélar. Sama gerð og sú sem hrapaði í nótt. 29. október 2018 19:30
Vélin sem hrapaði var glæný Talið er afar ólíklegt að einhver þeirra 189 sem um borð voru í flugvél Lion Air sem brotlenti í sjóinn skömmu eftir flugtak frá Jakarta í Indónesíu í nótt. Flugvélin sem hrapaði var glæný. 29. október 2018 14:29
Telja sig hafa fundið skrokk flugvélarinnar Leitarmenn telja sig hafa fundið staðsetningu flaksins og er þess nú beðið að það verði staðfest, þegar kafarar komast á svæðið. 31. október 2018 07:44