Handbolti

Sjötti sigur Bjarka Más í röð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Bjarki Már í leik með Berlínarliðinu.
Bjarki Már í leik með Berlínarliðinu. vísir/getty
Füchse Berlin vann sinn sjötta leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Lemgo í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag.

Refirnir frá Berlín hafa verið á miklu skriði og tóku þeir forystuna snemma leiks. Bjarki Már Elísson kom heimamönnum í 7-2 forystu eftir 12. mínútna leik og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 15-10.

Í seinni hálfleik hélst munurinn á liðunum í þremur til fimm mörkum, þegar upp var staðið endaði leikurinn í sex marka sigri, 29-23.

Bjarki Már skoraði fjögur mörk fyrir Refina í sex skotum.

Füchse Berlin er í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu leiki líkt og Bergischer. Nýliðarnir eru hins vegar með betri markatölu og ná því fjórða sætinu. Flensburg-Handewitt er á toppnum með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×