Standa fyrir endurbyggingu á Stórhöfða Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 23. september 2018 17:11 Vestmannaeyjar. Stórhöfði er þó ekki sjáanlegur á þessari mynd. Vísir/Pjetur
Eignarhaldsfélagið Stórhöfði- Vestmannaeyjar stendur fyrir endurbyggingu á íbúðarhúsinu við Stórhöfða sem var byggt árið 1906. Þá hefur lendingarpallur fyrir þyrlur verið settur upp á svæðinu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki eftir nokkra mánuði en eigendur ætla meðal annars að markaðssetja rokið á staðnum. Stórhöfði í Vestmannaeyjum er helst þekktur fyrir að vera sjálfvirk veðurstöð en þar var byrjað að stunda veðurathuganir árið 1921. Árið 1906 var byggt íbúðarhús fyrir vitavörð og var slíku starfi sinnt þar til árið 2007. Nokkrir athafnamenn sem standa að eignarhaldsfélaginu Stórhöfða í Vestmanneyjum fengu leyfi til að endurgera íbúðarhúsið og vitann er sú framkvæmd langt komin. Þröstur Johnsen er einn þeirra. „Við erum að endurgera og lagfæra húsið og vitann sjálfan þetta er húsnæði sem er um 200 fermetrar þannig að þetta er ekki stórt við áætlum að klárist framkvæmdir á húsinu á næstu 2-3 mánuðum.“ segir Þröstur. Þröstur segir að enn eigi eftir að ákveða hvaða rekstrarform verði á húsnæðinu. „Þetta getur orðið fjölnotahúsnæði, móttöku húsnæði eða þess vegna gisting. Þetta er frábær staðsetning og syðsta byggðin á Íslandi.“ Hann segir að vindurinn og rokið við Stórhöfða verði hluti af markaðssetningu á svæðinu. „Hérna hafa mælst mestu veðurofsanir og þetta er talinn vera einn vindasamasti staður í Evrópu“ Lendingarpallur fyrir þyrlur hefur verið settur upp við íbúðarhúsið en nú er verið að stækka hann. „Þyrlur hafa verið að lenda hérna og mönnum líkar aðstaðan mjög vel en þetta er kannski ekki formlegur þyrlupallur með ljósum og því öllu þetta er auðvitað bara slétt steypt stór plata sem fylgir þeim öryggisstaðli sem þarf að vera.“ sagði Þröstur Johnsen sem talaði frá Stórhöfða í Vestmannaeyjum.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira