Braut ítrekað gegn barnabarni sínu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. september 2018 10:30 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í sumar. Fréttablaðið/GVA
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega gegn barnabarni hans. Brotin voru framin er drengurinn var níu til tólf ára á árunum 2010 til 2013.Dómur í málinu féll þann 23. júlí síðastliðinn en maðurinn var ákærður í þremur liðum. Í fyrsta lagi fyrir að hafa í fjölda skipta, haft önnur kynferðismök en samræði við barnabarnið, með því að snerta kynfæri þess og fróa því.Í öðru lagi með því að hafa í eitt skipti, er maðurinn lá í sama rúmi og drengurinn, lyft sænginni og sagt við drenginn að limur hans væri „rosalega stór“ og spurt hvort hann mætti finna hvað hann væri „harður“ og snert kynfæri drengsins. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa í fjölda skipta þuklað í kringum kynfæri drengsins innan klæða.Héraðsdómur ReykjanessFréttablaðið/HariSagði foreldrum sínum frá brotunum Málið má rekja til þess að Barnaverndarnefnd óskaði eftir því í júlí 2016 við lögreglu að hafin yrði rannsókn á meintum brotum mannsins, sem og eiginkonu hans, gegn barnabarni þeirra. Faðir drengsins hafði upplýst nefndina um brot afans skömmu áður. Greindi faðir drengsins Barnaverndanefnd frá því að drengurinn hafði greint foreldrum sínum frá því að afi hans hefði misnotað hann kynferðislega er hann var yngri. Sagði hann foreldrum sínum frá því að afi hans hefði snert hann og fróað honum í hjónarúmi afans og ömmunnar. Misnotkunin hefði staðið yfir í nokkur ár og skiptin verið mörg. Hefði amma brotaþola verið viðstödd og vakandi í einhverjum þessara tilvika en hún ekkert sagt við háttsemi eiginmanns síns. Þegar skýrsla var tekin af drengnum sagðist hann telja að afinn hefði fróað honum í minnst átta skipti, sýnt honum myndir af nöktum konum og þvegið honum og bróður hans „extra vel“ þegar þeir dvöldust á heimilinu, meðal annars um kynfæri og á milli rasskinna.Dómari taldi framburð drengsins trúverðugan.Vísir/GettySagðist hafa verið að veita drengnum kynfræðslu Afinn og amman voru handtekin þann 22. júlí 2016 og neituðu þau sakargiftum. Sagði afinn að skýra mæti framburð drengsins að eitt sinn hafi drengurinn byrjað að fróa sér undir sænginni á meðan hann var að lesa fyrir drenginn.Sagðist hann hafa talað um þetta við drenginn þar sem það að fróa sér væri fullkomlega eðlilegur hlutur. Það ætti ekki að vera neitt feimnismál en heldur ekki að vera til sýnis. Í framhaldinu spurði afinn hvort hann mætti finna hversu harður limurinn væri og drengurinn svarað játandi. Hann hafi svo tekið utan um lim drengsins en talið að ekkert kynferðislegt hafi verið við þetta atvik.Þá kannaðist afinn við að hafa í eitt sinn, þegar hann og drengurinn hefðu verið að tala um stelpur og píkur, bent drengnum á að skrifa „vagina“ í leitarstreng á vefsíðunni Wikipedia. Hefðu þá birst fjölmargar myndir af kynfærum kvenna. Á afanum var að skilja að umfang myndefnisins hefði verið miklu meira en hann átti von á sem skýrðist af lítilli þekkingu hans á virkni netsins.Drengurinn var aftur boðaður í skýrslutöku nokkru síðar og bar hann þá um nokkur tilvik þar sem afinn hafði farið með höndina ofan í nærbuxur hans á meðan þeir voru að horfa á sjónvarpið og hafi afinn káfað á svæðinu við typpi drengsins.Maðurinn var handtekinn, ásamt eiginkonu sinni, vegna málsins.Fréttablaðið/Eyþór„Ertu að runka þér?“ Sem fyrr segir var ákæra í málinu gefin út á hendur afanum vegna málsins og við aðalmeðferð þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness neitaði hann sök, sagði hann engan fót vera fyrir lýsingum atvika í ákæruliðum eitt og þrjú en að þau samskipti sem hann var ákærður fyrir í kærulið tvö hafi verið „fullkomlega eðlileg“.Fyrir dómi lýsti hann samskiptunum nánar og sagðist hafa, líkt og við skýrslutöku, orðið var við að barnið væri að fróa sér er hann hafi verið að lesa fyrir það.„Ertu að runka þér?“ sagðist hann hafa spurt drenginn. Hann hafi svo lyft upp sænginni og sagt „Mikið svakalega er hann stór.“Því næst hefði ákærði tekið utan um typpið á drengnum með tveimur fingrum og bætt við: „Og harður.“ Var hann minntur á skýrslugjöf sína hjá lögreglu þar sem hann sagðist hafa beðið um að fá að koma við typpið. Fyrir dómi sagðist hann ekki kannast við það, hann hlyti að hafa mismælt sig.Sagði hann að drengurinn hefði á þessum tímapunkti sagt „Nuddaðu hann afi.“ Ákærði hefði svarað: „Nei, það gerir maður bara sjálfur.“ Sagðist hann hafa í kjölfarið rætt fram og til baka við drenginn um að ekki væri óeðlilegt að að fróa sér en að það væri gert í einrúmi.Taldi hann einnig að drengurinn væri að bera á hann rangar sakargiftir sem rekja mætti til sálfræðinga sem haft höfðu drenginn til meðferðar. Undir þetta tók kona mannsins, amma drengsins, sem taldi að ásakanirnar á hendur manni sínum væri „óskiljanlegt bull“ og að um algerar ranghugmyndir drengsins væri um að ræða.Nýtti sér yfirburðarstöðu Fyrir dóm voru lögð fram vottorð sálfræðinga þar sem meðal annars kom fram að drengurinn hafi verið afar samkvæmur sjálfum sér í viðtölunum þegar talið hafi borist að því kynferðisofbeldi sem hann hafi greint frá. Þá báru foreldrar drengsins vitni um það að drengurinn hafi farið að forðast það að umgangast afa sinn og ömmu eftir að brotin hófust og að líðan hans hafi versnað frá þeim tíma sem brotin áttu að hafa hafist.Maðurinn var sakfelldur í öllum ákæruliðum málsins en það var niðurstaða dómsins að meta mætti framburð drengsins í málinu trúverðugan, auk þess sem að ýmis atriði, svo sem það álit afans að rekja mætti ásakanir drengsins til sálfræðinga hans, drægju úr trúverðugleika afans, ekki síst vegna þess að framburður og vottorð sálfræðinga og framburður foreldra hans væru að töluverðu leyti í samræmi.Í dómi héraðsdóms segir að brot afans hafi verið alvarleg og framin á nokkurra ára tímabili. Þá hafi hann nýtt sér þá yfirburðastöðu sem hann hafði gagnvart barnungum sonarsyni sínum.Var maðurinn dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi, auk þess sem hann þarf að greiða fjórar milljónir í sakarkostnað og 1,7 milljónir til drengsins í miskabætur.Dóm Héraðsdóms má lesa hér.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Sjá meira