Einhver störf færast úr landi Jóhann K. Jóhannsson skrifar 30. ágúst 2018 18:45
Starfandi forstjóri Icelandair segir félagið ekki vera fara í stórkostlegar uppsagnir þó einhver störf verði mögulega flutt úr landi. Félagið leitar leiða til þess að draga úr kostnaði samhliða því að bæta leiðarkerfi félagsins og endurskoða sölu- og markaðsstarf þess. Hlutabréf í Icelandair hækkuðu lítillega á mörkuðum í dag eftir mikið fall frá því félagið sendi frá sér síðan aðra afkomuviðvörun í röð á mánudag. Við opnun markaða á þriðjudag fór gengið vel niður fyrir 7 krónur á hlut og hafði ekki verið lægra frá 2012. Tíðar breytingar í yfirstjórn Icelandair hafa verið umfjöllunarefni fjölmiðla undanfarin misseri og náði ákveðnu hámarki þegar að Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri, steig til hliðar í upphafi vikunnar. Því er slegið upp í Viðskiptablaðinu í dag að félagið ætli að færa starfsemi úr landi og draga úr kostnaði. Starfandi forstjóri félagsins segir að ekki verði gerðar miklar stefnubreytingar á rekstri félagsins eins og staðan er í dag utan þess að leiðarkerfinu verður breytt að einhverju leiti á næsta ári og markaðs- og sölustarf verður allt tekið til endurskoðunar. Öllum söluskrifstofum félagsins víða um heim var lokað á síðasta ári og reyndist sú ákvörðun dýrkeypt fyrir félagið. Bogi þó ekki von á að þær verði opnaðar aftur í þeirri mynd sem var.Bogi Nils Bogason, starfandi forstjóri IcelandairVísir/Jóhann K. Jóhannsson„Við erum ekki að fara að opna eða leigja húsnæði í stórum stíl úti í heimi en við ætlum að vera sterkari þarna heldur en við höfum verið undanfarna mánuði eða síðustu tólf mánuði,“ segir Bogi Níls Bogason, starfandi forstjóri Icelandair. Bogi segir að félagið þurfi sterkara sölunet og fókusinn settur á farþega sem skila hærri tekjum. Icelandair rekur dótturfélag í Eistlandi og á síðustu mánuðum hefur fleiri verkefnum verið úthlutað þangað en verkefnin snúa að bókhaldi og bakvinnslu. Þá eru fimmtíu og tvö stöðugildi hjá félaginu í Filipseyjum þar sem símasvörun er sinnt og ekki ólíklegt að stöðugildum þar verði fjölgað. Hann segir að félagið þurfi að vera á tánum og að kostnaðarhlutföll í rekstri hafa verið að breytast mikið. „Ísland er dýrt í dag og það er ódýrara að gera marga hluti erlendis. Við erum komin upp að ákveðinni stærð og við getum þá nýtt okkur fyrirtæki út í heimi sem eru að vinna fyrir önnur flugfélög og erum þá að njóta samlegðar með þeim og það er það sem við erum skoða mjög alvarlega núna,“ segir Bogi. Bogi segir að ekki sé hægt að segja til um það á þessu stigi hvort breytingunum fylgi uppsagnir. „Það er aldrei hægt að lofa því hvort það verði uppsagnir eða hvort við þurfum að bæta við fólki en við erum ekki að fara í einhverjar stórkostlegar uppsagnir. Grunnurinn er mjög sterkur hjá okkur. Það eru ákveðnir veikleikar sem við þurfum að laga. Stærsti hluti starfseminnar gengur vel þannig að við erum ekki að fara í einhverjar stórkostlegar breytingar í starfseminni,“ segir Bogi.
Tengdar fréttir Icelandair flytur störf til útlanda Áhafnir verða þá áfram íslenskar. 30. ágúst 2018 11:17 Segir að rekja megi vanda Icelandair til þess að stóru flugfélögin séu hætt að hunsa félagið Vandi Icelandair er fólgin í því að offramboð er á flugsætum á flugleiðum félagsins að mati sérfræðings. Segir hann einnig að stóru flugfélögin sem fljúgi milli Evrópu og Bandaríkjanna séu hætt að hunsa Icelandair. 29. ágúst 2018 14:27 Segir flugfélögin ekki of stór til að falla Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að íslensku flugfélögin séu ekki of stór til að falla og að þjóðarbúið sé í góðri stöðu til að mæta hvers konar áföllum. Hann telur þó mikilvægt að hrapa ekki að ályktunum í umræðu um stöðu flugfélaganna. 29. ágúst 2018 18:45 Þung skref að stíga til hliðar Fráfarandi forstjóri Icelandair hefur fulla trú á félaginu til lengri tíma litið. Hann segir eðlilegt að í flugrekstri séu uppsveiflur og niðursveiflur. 28. ágúst 2018 21:36 Stjórnarformaður Icelandair: „Rykið þarf að setjast“ Stjórnarformaður Icelandair Group segir allan kraft og fókus vera á að styrkja flugreksturinn og að félagið sé vel í stakk búið til þess að takast á við áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu. 28. ágúst 2018 12:00 Mest lesið „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira
Segir að rekja megi vanda Icelandair til þess að stóru flugfélögin séu hætt að hunsa félagið Vandi Icelandair er fólgin í því að offramboð er á flugsætum á flugleiðum félagsins að mati sérfræðings. Segir hann einnig að stóru flugfélögin sem fljúgi milli Evrópu og Bandaríkjanna séu hætt að hunsa Icelandair. 29. ágúst 2018 14:27
Segir flugfélögin ekki of stór til að falla Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að íslensku flugfélögin séu ekki of stór til að falla og að þjóðarbúið sé í góðri stöðu til að mæta hvers konar áföllum. Hann telur þó mikilvægt að hrapa ekki að ályktunum í umræðu um stöðu flugfélaganna. 29. ágúst 2018 18:45
Þung skref að stíga til hliðar Fráfarandi forstjóri Icelandair hefur fulla trú á félaginu til lengri tíma litið. Hann segir eðlilegt að í flugrekstri séu uppsveiflur og niðursveiflur. 28. ágúst 2018 21:36
Stjórnarformaður Icelandair: „Rykið þarf að setjast“ Stjórnarformaður Icelandair Group segir allan kraft og fókus vera á að styrkja flugreksturinn og að félagið sé vel í stakk búið til þess að takast á við áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu. 28. ágúst 2018 12:00