Hagnaður Arion banka dróst saman um fjóra milljarða á milli ára Kjartan Kjartansson skrifar 2. ágúst 2018 19:37 Arion banki var skráður á markað á öðrum ársfjórðungi ársins. Vísir/Eyþór
Samstæða Arion banka hagnaðist um 3,1 milljarð króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er fjórum milljörðum króna minna en á sama tímabili í fyrra. Heildareignir bankans nema nú hátt í 1.200 milljörðum króna. Í tilkynningu frá Arion banka kemur fram að arðsemi eigin fjár bankans hafi verið 5,9% á öðrum ársfjórðungi en hún var 13% á sama tímabili árið 2017. Hagnaður samstæðunnar á fyrri helmingi ársins hafi numið fimm milljörðum króna og arðsemin 4,7% borið saman við 10,5 milljarða króna hagnað og 9,7% arðsemi á sama tímabili í fyrra. Heildareignir bankans námu 1.174,8 milljörðum króna í lok júní 2018 samanborið við 1.147,8 milljarða króna í árslok 2017 og eigið fé hluthafa bankans nam 206,9 milljörðum króna, samanborið við 225,6 milljarða króna í árslok 2017. Eiginfjárhlutfall bankans var 21,9% í lok júní en var 24,0% í árslok 2017. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 nam 21,8%, samanborið við 23.6% í árslok 2017. Arion banki var skráður á aðalmarkaði Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm þann 15. júní sl., í kjölfar almenns útboðs, þar sem 28,7% hlutur var seldur. Fjárfestar frá Íslandi, Skandinavíu, Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum tóku þátt í útboðinu. Þetta var fyrsta skráning íslensks banka á aðalmarkað á Íslandi síðan 2008.
Mest lesið Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Sjá meira