Viðskipti innlent

Milljarðakröfur í þrota­bú Karls Wernerssonar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kröfur í þrotabú Karls Wernerssonar hljóða upp á milljarða króna.
Kröfur í þrotabú Karls Wernerssonar hljóða upp á milljarða króna. Vísir/GVA

Kröfulýsingarfresti er lokið í þrotabú Karl Wernerssonar sem tekið var til gjaldþrotaskipta í apríl. Haldinn verður skiptafundur með kröfuhöfum í næstu viku að sögn Árna Ármanns Árnasonar, lögmanns og skiptastjóra í búinu.



Árni segir kröfur í búið í sjálfu sér ekki svo margar en upphæðirnar afar háar. Þeirra á meðal er Milestone, skiptabeiðandinn, sem krafðist þess að Karl yrði lýstur gjaldþrota í júlí í fyrra. Kröfuskráin í búið er ekki opinber enn sem komið er að sögn Árna.



Karl skuldar þrotabúi Milestone fleiri milljarða króna í kjölfar dómsmála. Hlaut Karl 3,5 árs fangelsisdóm fyrir umboðssvik í rekstri Milestone og var sömuleiðis dæmdur til að greiða þrotabúi Milestone fleiri milljarða króna. Daginn eftir dóminn skilaði Karl leiðréttum ársreikningi og rúmlega tvítugur sonur Karls var skyndilega orðinn eigandi Lyfja og heilsu.

Lyf og heilsa var hluti af Milestone en seld út úr félaginu árið 2008. Lyf og heilsa rekur tugi apóteka undir merkjum Lyfja og heilsu, Gamla apóteksins og Apótekarans. Veltan árið 2015 var sex milljarðar króna.



Stundin vekur athygli á því í dag að fasteignafélagið Faxar ehf. sé nýr leigusali Læknavaktarinnar eftir að vaktin flutti í nýtt húsnæði í Austurveri við Háaleitisbraut í júní. Faxar rekur apótek Lyfja og heilsa í húsinu.



Eignarhald Jóns Hilmars Karlssonar á fasteignum í Austurveri og á Lyfjum og heilsu er í gegnum Faxa ehf. og Toska ehf. Jón Hilmar fékk sem fyrr segir eignirnar daginn eftir fangelsisdóm föður hans. Telja kröfuhafar umtalsverðar eignir hafa verið færðar undan á þennan hátt.


Tengdar fréttir

Milljarðadómur yfir Milestone-mönnum staðfestur

Karl Emil Wernersson, Steingrímur Wernersson og Guðmundur Ólason voru í Hæstarétti í dag dæmdir til að greiða þrotabúi Milestone 5,2 milljarða króna. Hæstiréttur staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í fyrra.

Færði Lyf og heilsu til tvítugs sonar síns

Daginn eftir að fjárfestirinn Karl Wernersson var dæmdur í fangelsi í Hæstarétti var leiðréttum ársreikningi skilað og rúmlega tvítugur sonur Karls eignaðist Lyf og heilsu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×