Skoðun

Bólusetning bjargar lífum en betur má ef duga skal

Valtýr Stefánsson Thors og Ásgeir Haraldsson skrifar
Þróun og framfarir undanfarinna alda hafa bætt lífsskilyrði í heiminum. Framfarir í heilbrigðisvísindum hafa skilað aukinni þekkingu og bættri meðferð á mörgum sjúkdómum sem áður voru undantekningarlítið banvænir. Má þar t.d. nefna tilkomu sýklalyfja og meðferð við krabbameinum á síðari hluta 20. aldarinnar. Þó má fullyrða með vissu að engin uppfinning mannanna hafi verið eins árangursrík í að bæta lífsgæði og draga úr dánartíðni barna eins og bólusetningar. Með markvissum aðgerðum hefur tekist að útrýma mörgum lífshættulegum og skaðlegum sjúkdómum. Vissulega hefur framþróun bóluefna ekki alltaf verið áfallalaus en í veruleika nútímans þar sem kostnaður við allar aðgerðir læknisfræðinnar þurfa að vera vel ígrundaðar, er líklega ekkert inngrip eins kostnaðar-ábatasamt og ungbarnabólusetningar.

Með tilkomu bólusetninga hefur tekist að útrýma lömunarveiki, bólusótt, stífkrampa og barnaveiki á Íslandi. Verulega hefur dregið úr tíðni kíghósta og heilahimnubólgu af völdum baktería og fjölda einstaklinga með mislinga, rauða hunda eða hettusótt má nánast telja á fingrum sér. Þessi árangur er frábær!

Rannsóknir hafa sýnt, að Íslendingar eru afar hlynntir bólusetningum. 

Ásgeir Haraldsson
En bólusetningar eru líka fórnarlömb eigin velgengni. Þegar sjúkdómarnir hverfa og ógnin dregur sig tímabundið í hlé getur mikilvægi bólusetninga gleymst og í kjölfarið dregið úr þátttöku.

Þetta hefur gerst á Íslandi og nú er svo komið að um 90% íslenskra barna eru bólusett gegn mislingum.

Þetta kann að hljóma nokkuð gott en þýðir í raun að u.þ.b. 400 börn á hverju ári fá ekki sína ráðlögðu bólusetningu gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (MMR bóluefnið).

Með tímanum verður því til umtalsverður hópur barna og ungs fólks sem er næmur fyrir mislingum sem eru einstaklega smitandi og hættuleg veira.

Mislingafaraldur geisar nú í Evrópu þar sem tæplega 40.000 manns hafa sýkst, um 5.000 hafa fengið alvarlega, stundum langvinna fylgikvilla og 39 hafa látist, flestir börn undir 5 ára. Langflestir þeirra sem sýkjast eru óbólusettir. Það er hryggilegt að tugir barna hafa látist úr sýkingu sem er vel hægt að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Látum þennan faraldur, sem nú geisar í Evrópu, vera okkur þarfa áminningu og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að vernda börnin okkar – þau eru það dýrmætasta sem við eigum.

Leggjum okkar af mörkum til að tryggja heilbrigði barnanna okkar, hvar sem þau eru í heiminum. Bólusetning bjargar lífum.

Höfundar eru barnalæknar




Skoðun

Sjá meira


×