Ég kom en Hjördís Björg Kristinsdóttir skrifar 25. maí 2018 07:24 Hann hjólar greiðlega enda að flýta sér, er að fara að kíkja á afa sinn, hafði reyndar ætlað það í nokkra daga, en ekki komið því við vegna anna. Hugsanir hans eru svolítið á reyki, hann hafði sagt við afa sinn að hann mundi kíkja við fljótlega, nú finnst honum að hann hafi átt að kíkja á afa fyrr. Hann er ungur og gengur í háskólann, en pabbi og mamma eru erlendis. Þau þurftu að yfirgefa landið þegar þau misstu allt sitt í „hruninu“ en hafa komið sér vel fyrir erlendis og hjálpa nú syni sínum að ljúka háskólanámi hér heima á Íslandi. Afi býr einn og hann er orðinn óöruggur síðan amma dó og hefur lokað sig af í sorg sinni. Hefur einangrast á þessum árum, en fylgist alltaf vel með fréttum og stjórnmálum. Afi hafði verið jákvæður þegar þeir ræddu um, að það væri gott hjá Flokki fólksins að hafa á stefnuskrá sinni Hagsmunafulltrúa fyrir aldraða, sagði að það væri það sem vantaði fyrir eldra fólk svo það einangraðist ekki. Afi hafði sagt að það væri það eina úrræði sem hann gæti hugsað sér, eins og komið væri fyrir honum sjálfum. Ungi maðurinn er kominn að húsinu sem afi býr í, er sá eini í fjölskyldunni sem kíkir nokkuð reglulega til afa. Hann leggur hjólinu sínu í hjólastandinn, tekur lykilinn sem afi hafði látið hann hafa svo hann gæti alltaf komist inn, án þess að þurfa að hringja dyra bjöllunni og standa úti, hvernig sem viðraði. Afi hafði sagst vera orðinn svolítið seinn upp á síðkastið, að opna fyrir honum. Afi er alltaf svo tillitsamur, þó hann sé orðinn þetta fullorðinn hugsar ungi maðurinn. Hann opnar dyrnar og gengur inn og kallar, „afi minn, ég er kominn að kíkja á þig, eins og ég sagðist mundi gera.“ Aldrei þessu vant svarar afi ekki, svo hann flýtir sér inn í eldhús, ekki er afi þar, dyrnar inn í svefnherbergið eru opnar og þegar hann kíkir þangað inn, liggur afi þar á gólfinu eins og hann sé dáinn. Hann snarstoppar, krýpur niður hjá afa sínum og hringir skjálfandi í neyðarlínuna. Sjúkrabílinn er kominn áður en varir, farið er með afa með blikkandi ljósum upp á sjúkrahús, og hann fylgir afa sínum í sjúkrabílnum. Hann er ringlaður og hugsar, hefði ég komið fyrr, hvað þá? Það fáum við aldrei að vita, því afi var úrskurðaður látinn þegar komið var upp á sjúkrahús.Flokkur fólksins, hefur í sinni stefnuskrá, FÓLKIÐ FYRST.Þessi stutta saga segir okkur hvað það er mikið hagsmuna mál fyrir eldri borgara að að fá Hagsmunafulltrúa, sem kemur í veg fyrir að það líði of margir dagar á milli heimsókna til eldri borgara. Ef þú sem lest þessa sögu, átt afa eða ömmu, langafa eða langömmu, veistu hvaða flokk þú átt að kjósa á laugardaginn, 26. Maí 2018Höfundur er í sjöunda sæti á lista Flokk fólksins í sveitarstjórnarkosningunum 2018 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kosningar 2018 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar