Ekkert aprílgabb á Brúnni 3. apríl 2018 05:30 Dele Alli fagnar fyrir framan stuðningsmenn Chelsea. vísir/getty
Tottenham bar sigurorð af Chelsea, 1-3, á Stamford Bridge á sunnudaginn var. Þrátt fyrir að leikinn hafi borið upp á 1. apríl voru úrslitin ekkert aprílgabb. Nei, þetta var fyrsti sigur Tottenham á Brúnni síðan 10. febrúar 1990, eða fyrir 28 árum. Fyrir leikinn á sunnudaginn hafði Tottenham ekki unnið Chelsea á Stamford Bridge í 27 deildarleikjum og 30 leikjum í heildina. Daginn eftir sigur Tottenham á Chelsea fyrir 28 árum var Nelson Mandela sleppt úr fangelsi, Margaret Thatcher var enn forsætisráðherra Bretlands og Sinead O’Connor vermdi efsta sæti topplistans með laginu Nothing Compares 2 U. Árið 1990 voru enn sex ár þangað til Dele Alli, sem skoraði tvö marka Tottenham í leiknum á sunnudaginn, fæddist. Gary Lineker og Paul Gascoigne voru aðalmennirnir í liði Tottenham og sá fyrrnefndi skoraði sigurmarkið í leiknum fyrir 28 árum. Og í liði Chelsea var leikmaður að nafni Kevin McAllister. Strákur með nánast sama nafn var aðalsöguhetjan í vinsælli kvikmynd sem kom út síðar á árinu 1990. Þar varði hann heimili sitt fimlega fyrir seinheppnum innbrotsþjófum. Burtséð frá sögulega samhenginu var sigurinn á sunnudaginn gríðarlega mikilvægur fyrir Tottenham í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Spurs, sem situr í 4. sætinu, er nú með átta stiga forskot á Chelsea þegar aðeins sjö umferðir eru eftir. Þetta var fimmta tap Chelsea í síðustu sjö deildarleikjum. Til samanburðar tapaði liðið fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni allt síðasta tímabil. Fallið er því ansi hátt og það bendir allt til þess að Chelsea missi aftur af Meistaradeildarsæti, tímabilið eftir að hafa orðið Englandsmeistari. Chelsea á enn möguleika á að vinna ensku bikarkeppnina en það mun líklegast ekki vera nóg til að bjarga starfi Antonios Conte. Svo er annað mál hvort Ítalinn vilji yfirhöfuð vera áfram hjá Chelsea. Hann virðist hafa verið ósáttur allt frá því síðasta tímabili lauk og það er margt ólíklegra en að hann taki aftur við ítalska landsliðinu. Þrátt fyrir allt var Chelsea ívið sterkara í fyrri hálfleik í leiknum á sunnudaginn og Álvaro Morata kom liðinu yfir eftir hálftíma með sínu ellefta deildarmarki. Sjö þeirra hefur hann skorað með kollspyrnum. En glæsimark Christians Eriksen í uppbótartíma fyrri hálfleiks breytti öllu. Spurs nýtti sér meðbyrinn og komst yfir á 62. mínútu þegar Alli fékk langa sendingu frá Eric Dier inn fyrir vörn Chelsea, tók vel við boltanum og setti hann fram hjá Willy Caballero sem stóð í marki Chelsea í stað Thibauts Courtois. Fjórum mínútum síðar skoraði Alli sitt annað mark og kom Tottenham í 1-3. Alli lék sinn 100. leik í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag og hélt upp á áfangann með tveimur mörkum. Þetta er í fyrsta sinn síðan 4. janúar 2017 sem Alli skorar tvö mörk í deildarleik. Þá skoraði hann bæði mörk Tottenham í 2-0 sigri á Chelsea sem var þá búið að vinna 13 deildarleiki í röð. Alli hefur legið undir gagnrýni að undanförnu og var ekki í byrjunarliði Englands í vináttulandsleikjunum tveimur á dögunum. En Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur staðið þétt við bakið á sínum manni. „Þetta hefur verið erfiður tími fyrir hann en það er ekki hægt að efast um hæfileika og karakter hans. Hann er baráttumaður með mikið keppnisskap," sagði Pochettino. „Hann er gríðarlega hæfileikaríkur og aðeins 21 árs gamall sem gleymist stundum. Oft eru væntingarnar til hans of miklar og pressan yfirþyrmandi.
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf McTominay sagt að passa sig á ítalska matarræðinu Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson „Ég er í sjokki eftir þennan leik“ Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Mbappé úr leik næstu vikurnar Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Ármenningar taplausir á toppnum Harðneitar því að hafa rekið við í leik Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Mikið fjör og leikgleði á fjölmennu ungmennamóti Óvænt alveg hættur „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ „Andlitið á mér var afmyndað“ Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Madrídingar á tæpasta vaði Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fram án þriggja gegn KR Sjá meira