Íhaldssöm Clueless-stjarna hættir við framboð til Bandaríkjaþings Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 31. mars 2018 17:37 Stacey Dash er þekkt fyrir leik sinn í myndinni Clueless. Vísir/Getty
Stacey Dash, sem þekktust er fyrir að hafa leikið bestu vinkonu Aliciu Silverstone í unglingamyndinni vinsælu Clueless, er hætt við að bjóða sig fram til Bandaríkjaþings. Í fréttatilkynningu sem Dash sendi fréttastofu CNN kemur fram að hún hafi, eftir mikla umhugsun, tekið þá ákvörðun að hætta við framboðið vegna þess að hún telji að það myndi koma niður á fjölskyldunni sinni. Velferð fjölskyldunnar væri í húfi því það væri ákveðinn „biturleiki“ sem einkenni stjórnmálaástandið á vorum dögum. „Ég myndi aldrei brjóta í bága við mín persónulegu og trúarlegu gildi sem ég hef í miklum hávegum; Guð og fjölskyldan mín eru í fyrsta sæti,“ segir Dash. Snemma í þessum mánuði tilkynnti Dash að hún hygðist bjóða sig fram í Kaliforníu og sóttist auk þess eftir stuðningi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Það þótti frá upphafi mjög ólíklegt að Dash hlyti útnefningu repúblikana en hún hafði í hyggju að bjóða sig fram í hverfi sem hefur verið í gegnum tíðina vígi frjálslyndra. Kjósendur hverfisins kusu flestir Hillary Clinton í forsetakosningunum 2016 auk þess sem sitjandi þingmaður hverfisins er demókrati. Í viðtali við Guardian sagði Dash frá því að eftir að hafa greint frá stjórnmálaskoðunum sínum hafi henni verið útskúfað frá Hollywood.
Tengdar fréttir Clueless-leikkona býður sig fram og vill stuðning Trump Stacey Dash, leikkonan sem lék bestu vinkonu Aliciu Silverstone, í unglingamyndinni vinsælu Clueless hefur boðið sig fram til setu á Bandaríkjaþingi. 11. mars 2018 14:32 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira
Clueless-leikkona býður sig fram og vill stuðning Trump Stacey Dash, leikkonan sem lék bestu vinkonu Aliciu Silverstone, í unglingamyndinni vinsælu Clueless hefur boðið sig fram til setu á Bandaríkjaþingi. 11. mars 2018 14:32