James Harden stigahæstur í sögulegum sigri Houston Dagur Lárusson skrifar 25. mars 2018 09:30 James Harden. vísir/getty
James Harden var stigahæstur í sigri Houston Rockets á New Orleans Pelicans í NBA körfuboltanum í nótt en þetta var áttundu sigurleikur Rockets í röð en hann var sögulegur. Houston Rockets voru fyrir leikinn í efsta sæti Vesturdeildarinnar en Golden State voru þó ekki langt á eftir. Liðsmenn Rockets byrjuðu leikinn með miklum krafti og voru komnir með góða forystu strax í fyrsta leikhluta 29-16. Sú forysta jókst eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn og var staðan 64-37 í hálfleiknum. Í seinni hálfleiknum náðu liðsmenn New Orleans aðeins að rétta úr kútnum og skoruðu 24 stig gegn 19 hjá Houston í þriðja leikhlutanum en Houston hafði þó alltaf yfirhöndina og vann að lokum sigur 114-91. James Harden var stigahæstur í liði Houston með 27 stig á meðan Anthony Davis var stigahæstur hjá New Orleans með 25 stig. Það má segja að þessi sigur Houston hafi verið sögulegur þar sem eftir sigurinn hefur félagið aldrei unnið jafn marga leiki á einu tímabili. Dwight Howard var stigahæstur í sigri Charlotte Hornets á Dallas Mavericks með 18 stig á meðan Kyle Kuzma var stigahæstur í sigri LA Lakers á Memphis Grizzlies. Philadelphia 76ers unnu Minnestoa Timberwolves 120-108 þar sem Joel Embiid var stigahæstur með 19 stig. Eftir leikinn eru 76ers í fjórða sæti Austurdeildarinnar, skammt á eftir Cleveland Cavaliers.Úrslit næturinnar: 76ers 120-108 Timberwolves Pistons 117-95 Bulls Magic 105-99 Suns Rockets 114-91 Pelicans Grizzlies 93-100 Lakers Mavericks 98-102 HornetsHér fyrir neðan má sjá brot úr leik Houston Rockets og New Orleans Pelicans.
NBA Tengdar fréttir Curry stigahæstur í endurkomunni│Meiddist aftur Stephen Curry sneri til baka eftir meiðsli í gærkvöldi og skoraði 29 stig gegn Atlanta Hawks í sigri Golden State. Curry meiddist þó aftur í lok leiks og verður því aftur frá í einhvern tíma. 24. mars 2018 10:00 Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Sjá meira
Curry stigahæstur í endurkomunni│Meiddist aftur Stephen Curry sneri til baka eftir meiðsli í gærkvöldi og skoraði 29 stig gegn Atlanta Hawks í sigri Golden State. Curry meiddist þó aftur í lok leiks og verður því aftur frá í einhvern tíma. 24. mars 2018 10:00