Fæðingum fjölgar í Evrópu en frumbyrjur verða eldri Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 29. mars 2018 08:30 Fæðingartíðni fer hækkandi á Íslandi. Fréttablaðið/Vilhelm
Meðalaldur frumbyrja í ríkjum Evrópusambandsins var 29 ár árið 2016 en alls fæddist 5,1 milljón barna í ríkjunum 28, auk Sviss, Liechtenstein, Noregs og Íslands. Hagfræðistofnun Evrópusambandsins, Eurostat, greindi frá þessu í gær. Í umfjöllun Eurostat kemur fram að meðalaldur frumbyrja á Íslandi hafi verið 27,8 ár en alls voru fyrstu fæðingar 1.559 talsins á Íslandi árið 2016. Annars voru frumbyrjur yngstar í Búlgaríu og Rúmeníu, eða 26 ára að meðaltali. Í raun voru rúm fjórtán prósent allra fæðinga í Evrópu þar sem móðir er á unglingsaldri í þessum tveimur löndum. Á sama tíma voru frumbyrjur elstar á Ítalíu, eða 31 árs að meðaltali. Rannsókn Eurostat, sem byggir á útgefnum gögnum frá aðildarríkjunum, sýnir að aðeins fimm prósent af fyrstu fæðingum í Evrópusambandinu voru hjá konum sem voru tvítugar eða yngri og um leið að þrjú prósent frumbyrja voru fertugar eða eldri. Fæðingartíðni í ESB árið 2016 var 1,6 fæðingar fyrir hverja konu. Lægsta tíðnin var á Spáni, eða 1,34, en hæst í Frakklandi, eða 1,92. Meðalaldur frumbyrja á Íslandi fer hækkandi. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu var meðalaldur þeirra frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 undir 22 árum. Eftir miðjan níunda áratug síðustu aldar fór meðalaldurinn hækkandi og var 27,8 ár árið 2016, eins og áður segir.
Birtist í Fréttablaðinu Heilbrigðismál Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Sjá meira