Með kauprétt að 21 prósents hlut í Valitor Hörður Ægisson skrifar 14. febrúar 2018 06:30 Valitor er verðmætasta dótturfélag Arion banka en virði þess er líklega vel á þriðja tug milljarða. VÍSIR/STEFÁN
Meirihluti hluthafa Arion banka, meðal annars vogunarsjóðir og Kaupþing, sækist nú eftir því að Valitor verði aðgreint frá bankanum, áður en kemur að útboði og skráningu í vor, þannig að hlutabréf kortafyrirtækisins verði að stærstum hluta greidd út í formi arðs til hluthafa. Við slíka ráðstöfun myndu erlendir vogunarsjóðir og Goldman Sachs, sem eignuðust liðlega 30 prósenta hlut í Arion banka fyrir um ári, jafnframt eiga kauprétt að 21,4 prósenta hlut til viðbótar í Valitor af Kaupþingi, samkvæmt heimildum Markaðarins. Er kauprétturinn á um helmingi hærra verði en sem nemur bókfærðu virði Valitor í reikningum Arion banka. Ekki er samstaða um það á meðal eigenda bankans að hlutabréf Valitor verði greidd út í arð en sú ráðstöfun þarf samþykki stjórnar bankans. Bankasýslan, sem heldur utan um 13 prósenta hlut ríkisins í Arion banka og á einn mann í stjórn, hefur þannig komið þeirri skoðun sinni skýrt á framfæri við Kaupþing að stofnunin sé mótfallin slíkri arðgreiðslu og að fremur eigi að selja fyrirtækið í opnu söluferli. Afstaða vogunarsjóðanna og Kaupþings, ásamt ráðgjöfum félagsins, er hins vegar sú að það yrði til þess fallið að auka áhuga erlendra fjárfesta á þátttöku í fyrirhuguðu hlutafjárútboði Arion banka ef Valitor yrði aðskilið frá samstæðunni. Afkoma af undirliggjandi rekstri Valitor síðustu ár hafi verið dræm og þá séu í gangi dómsmál sem höfðuð hafa verið gegn félaginu, þar sem krafist sé margra milljarða króna í skaðabætur, og hafa ekki verið til lykta leidd. Andstaða Bankasýslunnar við áform stærstu hluthafa um að aðgreina Valitor frá bankanum fyrir útboð með því að ráðstafa hlutabréfum þess í arð til eigenda gæti aukið líkur á því, að sögn þeirra sem þekkja vel til stöðu mála, að Kaupþing nýti sér kauprétt að 13 prósenta hluta ríkisins í bankanum. Samkvæmt þeim kauprétti, sem grundvallast á hluthafasamkomulagi frá árinu 2009, þyrfti Kaupþing að greiða í kringum 23 milljarða króna fyrir eignarhlut ríkisins í bankanum. Fyrrnefndur kaupréttur vogunarsjóða – Taconic Capital, Attestor Capital og Och-Ziff Capital – og Goldmans Sachs á hlutabréfum í Valitor af Kaupþingi virkjast aðeins komi til þess að bréfin í kortafyrirtækinu greiðist út til hluthafa með arðgreiðslu eða öðrum sambærilegum hætti. Samið var um kaupréttinn samhliða því að gengið var frá kaupum fjárfestahópsins á tæplega 30 prósenta hlut Kaupþings í Arion banka í mars 2017. Það var fréttaskýringarþátturinn Spegillinn sem upplýsti fyrst um tilurð kaupréttarins í apríl í fyrra. Samkvæmt heimildum Markaðarins er ekki gert ráð fyrir því að Arion banki, sem á allt hlutafé í Valitor, muni greiða út öll sín hlutabréf í félaginu í formi arðgreiðslu til hluthafa heldur muni halda eftir um liðlega 20 prósenta hlut. Gangi það eftir myndu vogunarsjóðirnir og Goldman Sachs eignast að óbreyttu samanlagt um 24 prósenta hlut í Valitor auk þess að eiga kauprétt að 21,4 prósenta hlut í félaginu af Kaupþingi. Ef allir sjóðirnir myndu nýta sér þann kauprétt, sem er ekki endilega víst, ættu þeir því samtals um 45 prósenta hlut í Valitor. Ljóst er að Valitor er verðmætasta dótturfélag Arion banka – í reikningum bankans er þó ekki sérstaklega getið hvers virði eignin er – en samkvæmt heimildum Markaðarins er kaupréttur sjóðanna og bandaríska fjárfestingarbankans sem fyrr segir á umtalsvert hærra verði en nemur bókfærðu virði félagsins í bókum bankans. Samkvæmt ársreikningi Valitor Holding nam eigið fé félagsins rúmlega 15 milljörðum í árslok 2016. Ætla má hins vegar, sé tekið mið af margföldurum erlendra samanburðarfélaga, að markaðsvirði Valitor sé vel á þriðja tug milljarða króna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira