„Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Árni Sæberg skrifar 22. september 2026 15:28 Ingibjörgu líst ekkert á boðaðar breytingar á tollflokkun pitsaosts. Vísir Þingmaður Miðflokksins veltir því fyrir sér hvort tilgangurinn með boðaðri breytingu á tollflokkun pitsaosts séu sérhagsmunir Viðreisnar og þjónkun við innflytjendur matvæla. Miðflokkurinn muni tala til varna fyrir landbúnaðinn komi frumvarp þess efnis fyrir þingið.
Líkt og Vísir fjallaði um í gær birti fjármála- og efnahagsráðuneytið þann 4. september síðastliðinn áform um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Meðal boðaðra breytingar er breyting á tollflokkun pitsaosts. Umræðan um tollflokkun pitsaosts á sér langa sögu en nú síðast var fjallað um það að bændur eru æfir vegna boðaðra breytinga, sem höfðu raunar verið boðaðar áður en síðar afboðaðar. Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, gerði sér mat úr málinu á þingfundi dagsins, undir liðnum störf þingsins. „Fyrirhuguð breyting beinist að vöruflokki sem hefur sætt ítarlegri meðferð hjá íslenskum tollyfirvöldum og öllum stigum dómstóla og hefur verulega þýðingu fyrir íslenska mjólkurframleiðslu eins og kunnugt er,“ sagði hún í upphafi ræðu sinnar. Opni glufu frekar en loki Ingibjörg sagði það vekja sérstaka athygli að samkvæmt áformaskjali ráðuneytisins sé markmið áformaðs frumvarps meðal annars að loka glufum, fækka undanþágum í skattkerfinu og auka skilvirkni í framkvæmd. „Þetta eru ekkert annað en öfugmæli, frú forseti, því að þessi fyrirhugaða breyting á tollflokkum myndi fela í sér hið gagnstæða þar sem hún myndi skapa sérstaka undanþágu fyrir afmarkaðan vöruflokk sem hingað til hefur notið sömu tollmeðferðar og aðrar sambærilegar mjólkurafurðir og frekari glufur opnaðar. Þessi áform fjármálaráðherra Viðreisnar munu því óhjákvæmilega hafa mikil áhrif á íslenska mjólkurframleiðslu og afkomu kúabúa. En ég get upplýst Viðreisn um, sé henni ekki kunnugt um það, að mjólkurframleiðsla á sér stað á kúabúum á landsbyggðinni þar sem verðmætasköpun á sér stað og lífsviðurværi fjölda fjölskyldna í landinu, hún skiptir gríðarlegu máli.“ Sérhagsmunir fárra undir Ingibjörg sagði þá að það læddist að henni sá grunur að fyrirhuguð breyting myndi fyrst og fremst þjóna sérhagsmunum fámenns hóps. Næði breytingin fram að ganga yrðu sérhagsmunir örfárra innflytjenda matvæla teknir fram yfir almannahagsmuni, sem fælust meðal annars í fæðuöryggi, innlendri verðmætasköpun, byggðafestu og framleiðslugetu landsins, auk þess sem með þessu yrði skapað afar slæmt fordæmi. „Hver er þá tilgangurinn? Það er von að maður velti því fyrir sér. Er tilgangurinn að herða enn frekar að landbúnaðarframleiðslu í landinu? Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar og þjónkun við tiltekna innflytjendur matvæla? Ég get upplýst þingheim um það að muni þetta frumvarp líta dagsins ljós, sem ég vona að það geri ekki, þá mun Miðflokkurinn taka til varna fyrir landbúnaðinn.“
Tollflokkun pitsaosts Landbúnaður Viðreisn Alþingi Matvælaframleiðsla Miðflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira