Tólfti sigur Cleveland í röð á heimavelli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. desember 2017 07:30 LeBron James fór mikinn gegn Chicago í nótt. Vísir/Getty
LeBron James skoraði 34 stig þegar Cleveland vann sinn tólfta heimasigur í röð í NBA-deildinni í nótt, í þetta sinn gegn Chicago, 115-112. James var með ellefu stig í fjórða leikhluta og setti niður tvö vítaskot þegar rúmar tíusekúndur voru eftir af leiknum. Það dugði til að tryggja sigurinn og binda enda á sjö leikja sigurgöngu Chicago. Kevin Love skoraði 27 stig en stigahæstur hjá Chicaco var Finninn Lauri Markkanen með 25 stig. Tyronn Lue, þjálfari Cleveland, veiktist skömmu fyrir leik og gat því ekki verið á hliðarlínunni í nótt. New York vann Boston, 102-93. Michael Beasley átti stórleik og skoraði 32 stig, þar af 28 í síðari hálfleik. Hann hélt Kristaps Porzingis á bekknum í fjórða leikhluta. Porzingis sneri aftur í lið New York í nótt eftir að hafa verið frá vegna meiðsla. Það gekk hins vegar ekkert hjá honum og brenndi hann af öllum ellefu skotum sínum utan af velli í leiknum. Hjá Boston var Kyrie Irving stigahæstur með 32 stig. Toronto vann Philadelphia, 114-109, eftir að hafa verið mest 22 stigum undir í leiknum. DeMar DeRozan átti stórleik og skoraði 45 stig en Joel Embiid missti af enn einum leiknum hjá Philadelphia vegna meiðsla.Úrslit næturinnar: Cleveland - Chicago 115-112 Philadelphia - Toronto 109-114 New York - Boston 102-93 Phoenix - Memphis 97-95 Utah - San Antonio 100-89
NBA Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira