Hlýnunin á norðurskautinu fordæmalaus í 1.500 ár Kjartan Kjartansson skrifar 13. desember 2017 14:54 Fjölær hafís á norðurskautinu er nú aðeins um fimmtungur af heildarísnum. Hlutfallið var um 45% á 9. áratug síðustu aldar. Vísir/AFP
Hafísinn á norðurskautinu hefur hopað meira undanfarin ár og áratugi en að minnsta kosti síðustu 1.450 árin á undan og yfirborðshiti þar hefur ekki hækkað hraðar í að minnsta kosti 2.000 ár. Þetta er á meðal niðurstaðna nýrrar skýrslu Haf- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna (NOAA. Hlýnunin á norðurheimsskautinu hefur verið um það bil tvöfalt meiri en annars staðar á jörðinni og það hefur valdið miklum og hröðum breytingum á umhverfinu þar. Þar á meðal er hröð bráðnun Grænlandsjökuls og möguleg áhrif á veðurfar annars staðar á jörðinni. Auk þess að hafa skroppið verulega saman að flatarmáli hefur hafísinn á norðurskautinu einnig orðið þynnri og skammlífari en áður. Ísinn lifir sjaldnast yfir sumarið og fram á næsta vetur eftir að hann myndast, að því er segir í umfjöllun Washington Post um skýrsluna. „Norðurskautið er að ganga í gegnum fordæmalausustu breytingar í mannkynssögunni og við þurfum betri athuganir til þess að skilja og spá fyrir um hvernig þessar breytingar munu hafa áhrif á alla, ekki bara íbúa norðursins,“ sagði Jeremy Mathis, forstöðumaður norðurskautsrannsókna NOAA á fundi Bandaríska jarðvísindabandalagsins í gær. NOAA gefur árlega út skýrslu um ástand norðurskautsins í hlýnandi heimi af völdum manna. Þetta er í fyrsta skipti sem slík skýrsla er gefin út eftir að Donald Trump tók við sem forseti Bandaríkjanna. Ríkisstjórn hans hefur afnumið aðgerðir í loftslagsmálum og stefnir að því að hætta þátttöku í Parísarsamkomulaginu.
Loftslagsmál Tengdar fréttir Lágmarksútbreiðsla hafíssins sú áttunda minnsta í sögunni Þrátt fyrir að sumarið á norðurskautinu hafi ekki verið markvert veðurfarslega er lágmarksútbreiðsla hafíssins þar með minnsta móti. 20. september 2017 16:24 Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Innlent Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Innlent Fleiri fréttir Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Sjá meira
Lágmarksútbreiðsla hafíssins sú áttunda minnsta í sögunni Þrátt fyrir að sumarið á norðurskautinu hafi ekki verið markvert veðurfarslega er lágmarksútbreiðsla hafíssins þar með minnsta móti. 20. september 2017 16:24