Líkir Russell Westbrook við Mike Tyson Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2017 12:30 Russell Westbrook. Vísir/Getty
Jason Kidd, núverandi þjálfari Milwaukee Bucks, var á sínum bestu árum sá leikmaður sem var líklegastur til að ná þrennu í NBA-deildinni í körfubolta. Í dag er það hinn magnaði Russell Westbrook sem safnar þrennunum og var meira segja með þrennu að meðaltal á síðasta tímabili. Kidd og lærisveinar hans mætu Russell Westbrook í nótt og urðu að sætta sig við 110-91 tap þar sem Westbrook var bara einni stoðsendingu frá þrennunni. Jason Kidd var að sjálfsögðu spurður út í leikmanninn sem var kosinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar á síðustu leiktíð. „Hann er [Mike] Tyson körfuboltans,“ sagði Jason Kidd um Westbrook eftir leikinn. ESPN segir frá. „Um leið og boltanum er kastað upp þá veistu að hann er að koma á þig á fullum krafti. Það er eins og þegar bjallan gall í hringinum með Tyson,“ sagði Kidd. „Hann spilar bara á einum hraða og það er hratt og hart. Hann er öðruvísi en allir leikmenn en sá kemst kannski næst honum er John Wall,“ sagði Kidd. „Hann keyrir bara á þig á þessum svakalega hraða og hann er aldrei að fara ganga upp með boltann. Hann keyrir á þig með það markmið að skapa vandræði. Hann er sá besti í deildinni, setur mikla pressu á vörnina, bæði í sókn og vörn,“ sagði Kidd.
NBA Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira