Ásgeir Örn vonast til að spila annan leikinn gegn Svíum
Ásgeir Örn hefur glímt við meiðsli í upphafi tímabils og lítið komið við sögu hjá sínu félagsliði, Nimes í Frakklandi. Hann segist þó vera á batavegi.
„Staðan er þokkaleg. Þetta er búið að vera frekar hægt haust en ég er allur að koma til. Núna er þetta allt á uppleið,“ sagði Ásgeir Örn sem hefur verið meiddur mjöðm síðan í lok ágúst. Aðspurður sagðist Ásgeir Örn vera bjartsýnn á að geta spilað allavega annan leikinn gegn Svíum.
Ásgeir Örn, sem er 33 ára, er næstelsti leikmaðurinn í íslenska hópnum sem er mjög ungur að þessu sinni.
„Þetta eru ungir og ferskir strákar. Þetta er vissulega nýtt og öðruvísi. Það felast nýjar áskoranir í því. En maður saknar auðvitað gömlu vinanna,“ sagði Ásgeir Örn sem reynir hvað hann getur til að hjálpa yngri leikmönnunum í íslenska liðinu.
„Maður gerir það sem maður getur til að hjálpa þeim og gera þetta létt. Við erum allir að reyna að vinna leiki og maður reynir að miðla af reynslunni.“
Ásgeir Örn hefur leikið í Frakklandi síðan 2012, fyrstu tvö árin með Paris Saint-Germain og síðan með Nimes.
„Ég gerði nýjan þriggja ára samning í fyrra þannig að ég á þetta tímabil og næsta eftir. Síðan tekur maður stöðuna. Þá verður maður orðinn 35 ára og allt eins líklegt að maður fari heim. En maður veit aldrei,“ sagði Ásgeir Örn.
Hauka, uppeldisfélag Ásgeirs Arnar, vantar örvhenta skyttu. Er ekki gráupplagt fyrir hann að fylla það skarð?
„Það er aldrei að vita. Maður sér til,“ sagði Ásgeir hlæjandi.
Tengdar fréttir
Gísli Þorgeir: Handbolti spyr ekki um aldur
Gísli Þorgeir Kristjánsson leikur væntanlega sína fyrstu landsleiki þegar Ísland mætir Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum í Laugardalshöll annað kvöld og á laugardaginn.
Létt yfir strákunum í morgun | Myndir
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því sænska í fyrri vináttulandsleik liðanna í Laugardalshöllinni annað kvöld. Liðin mætast aftur á laugardaginn, sjálfan kjördaginn.
Tuttugu ára aldursmunur á leikmönnum A-landsliðsins
Það munar rétt tæplega tuttugu árum á tveimur leikmönnum íslenska A-landsliðsins í handbolta sem er að fara mæta Svíum í tveimur vináttulandsleikjum í Laugardalshöllinni á næstu dögum.
Guðjón: Aron á eftir að rita nafn sitt stórum stöfum í sögu Barcelona
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson er afar ánægður fyrir hönd Arons Pálmarssonar sem í gær varð formlega leikmaður Barcelona.