Skoðun

Það er gott fyrir okkur öll að skipta um flokk

Eygló Halldórsdóttir skrifar
Í dag veljum við Íslendingar fulltrúa til að gegna löggjafarstörfum á Alþingi, stjórna ráðuneytum og sitja í ríkisstjórn landsins. Margir flokkar eru í boði og sitt sýnist hverjum um ágæti þeirra. Sumir kjósendur ætla að velja annan flokk en síðast þegar þeir kusu, en aðrir telja algert óráð að skipta um skoðun og merkja ætíð við sama bókstafinn. Kannski má kalla það eins konar bókstafstrú.

En það er annars konar val sem er mér líka hugleikið. Ég er mikið fyrir svokallaða útivist og hef tamið mér um nokkurt skeið á útivistarferðum mínum innanbæjar sem utan að tína upp í hverri ferð minnst 3 stykki af rusli, aðallega plasti, sem ég finn á röngum stað og koma því til skila í ruslaílát. Það er skemmst frá því að segja að þetta er ekki einnar konu verk, sérstaklega þegar keppa þarf við alla hina sem hafa þveröfugt markmið við mitt, þ.e. að fleygja rusli helst ekki í ruslaílát heldur á víðavangi. Það er þetta fólk sem ég vil skora á að skipta um flokk, koma sér úr ruslflokki og í hreinsunarflokk.

Mörgum er tamt að gera kröfur til annarra og tala um það sem þeir eiga rétt á, en hvað með eigin ábyrgð og skyldur?

Ég veit að sumir hugsa: „Af hverju ætti ég að tína upp rusl sem aðrir fleygja á víðavangi?“ Mitt svar er: „Af því þú vilt sýna umhverfi þínu virðingu og vera ábyrg og góð fyrirmynd fyrir fólkið sem hefur sett sjálft sig í ruslflokk.“ - Það getur enginn allt, en allir geta eitthvað, t.d. tínt upp 3 stk. af rusli á dag.

Hugsaðu þér áhrifin ef 10 manns ganga úr ruslflokki í hreinsunarflokk og tína upp 3 stk. af rusli á dag í stað þess að fleygja og ef þessir 10 myndu hver um sig valda því að 10 til viðbótar tæku upp 3 stk. af rusli á dag. Ertu til í að prófa að ganga í hreinsunarflokkinn? Það kostar ekki neitt og ávinningurinn gæti komið á óvart.

Gerum betur fyrir okkur öll.

Sameiginlegt stórátak til að móta framtíðina.

Látum hjartað ráð för og horfum fram á „hreinan“ veginn.

Stöndum með náttúrunni því bráðum kemur betri tíð ef við kjósum betra „og hreinna“ Ísland.

Tökum stjórn „og gerum þetta“ saman.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×