Spánarkonungur fordæmir sjálfstæðissinna Kjartan Kjartansson skrifar 3. október 2017 20:51 Í sjónvarpsávarpi sagði Flippus konungur að skipuleggjendur atkvæðagreiðslunnar í Katalóníu hafi hafið sig yfir lög og reglu. Vísir/AFP
Filippus Spánarkonungur sagði að leiðtogar Katalóníu hefðu vanvirt völd spænska ríkisins í ávarpi sem hann flutti í kvöld. Fordæmdi hann skipuleggjendur þjóðaratkvæðagreiðslunnar um sjálfstæði héraðsins. Hundruð þúsunda Katalóníubúa hafa mótmælt framferði þjóðvarðliðsins á sunnudag þegar það reyndi að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem stjórnlagadómstóll Spánar hafði úrskurðað ólöglega. Hundruð manna særðust í átökum við lögreglu. Í ávarpi sínu í kvöld kallaði Filippus konungur eftir einingu en fordæmdi jafnframt skipuleggjendur atkvæðagreiðslunnar. „Þeir hafa brotið lýðræðislegar grundvallarreglur réttarríkisins,“ sagði Spánarkonungur. Sagðist hann jafnframt telja katalónskt samfélag sundrað og varaði við því að þjóðaratkvæðagreiðslan gæti stefnt efnahag héraðsins og Spánar í heild sinni í voða.Breska ríkisútvarpið BBC segir að fleiri en 2,2 milljónir Katalóna hafi greitt atkvæði á sunnudag. Héraðsstjórnin segir að 90% þeirra hafi stutt sjálfstæði. Opinberar tölur hafa þó enn ekki verið birtar. Kjörsókn var heldur dræm, aðeins 42%. Það er talið geta grafið undan stöðu Carles Puigdemont, leiðtoga héraðsstjórnar Katalóníu.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sjá meira