Þetta eru málin sem ríkisstjórnin ætlar að leggja fram Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2017 12:45 Ráðherrar ríkisstjórnarinnar á ríkisráðsfundi í fyrradag. Vísir/Stefán
Þjóðarsjóður til að mæta fjármálaáföllum, afnám reglna um uppreist æru og heildarendurskoðun á lögum um ferðamál eru á meðal þeirra 188 mála sem ríkisstjórnin ætlar að leggja fyrir á Alþingi í þessum vetri. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var birt á vef stjórnarráðsins í gærkvöldi þar sem fram kemur hvaða mál hver og einn ráðherra hyggst leggja fyrir með áætluðum tímasetningum. Þing var sett í gær.Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra. Fimm mál.Forsætisráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um stofnun á sérstökum þjóðarsjóð í febrúar. Sjóðnum yrði ætlað að „byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum án þess að það leiði til skuldasöfnunar eða ójafnvægis í hagkerfinu“.Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra. Fjórtán mál. Frá dómsmálaráðherra er meðal annars von á frumvarpinu að breytingum á almennum hegningarlögum til að afnema ákvæði um uppreist æru sem mikil umræða hefur átt sér stað um að undanförnu. Með frumvarpinu er lagt til að heimild forseta Íslands til að veita manni sem fengið hefur refsidóm sem hefur í för með sér að hann missi borgaraleg réttindi sín uppreist æru verði felld úr almennum hegningarlögum.Sigríður Ásthildur Andersen dómsmálaráðherra hefur staðið í ströngu vegna umræðu um uppreist æru.Vísir/ErnirRáðherrann stefnir einnig að því að fella niður bann við ýmis konar starfsemi á ákveðnum helgidögum þjóðkirkjunnar. Frumvarp þess efnis verður lagt fram í febrúar standist áætlunin. Endurupptökunefnd verður lögð niður verði frumvarp dómsmálaráðherra að lögum. Samkvæmt því verður settur á fót sérdómstóll sem skera á úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðhera. Sextán mál. Stærsta málið sem ferðamálaráðherra ætlar að leggja fram á þessum þingvetri er vafalaust heildarendurskoðun á gildandi lögum um skipan ferðamála á Íslandi. Stefnt er að því að leggja fram frumvarp þess efnis í nóvember. Einnig leggur hann til að starfræktur verði Flugþróunarsjóður til að styðja við reglulegt millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða. Frumvarp þess efnis er háð niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA um starfsemi sjóðsins sem beðið er eftir.Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.vísir/ernirÞorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra. Sextán mál. Á meðal helstu mála félagsmálaráðherra er endurflutt frumvarp um heildarendurskoðun á lögum um málefni fatlaðs fólks og innleiðing samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi þeirra. Íslensk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að draga lappirnar með að innleiða samninginn. Í frumvarpi um breytingar á lögum um almannatryggingar er lagt til að lífeyristökualdur í almannatryggingum verði hækkaður í áföngum úr 67 árum í 70 ár yfir 24 ára tímabil. Þá er lagt til sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega í því skyni að draga úr áhrifum atvinnutekna á fjárhæð ellilífeyrisBenedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsáðherra. 37 mál. Auk fjárlaga og fjármálaáætlunar leggur fjármálaráðherra til nokkur stór mál. Þar á meðal eru frumvarp um að ferðaþjónustutengd starfsemi færist í almennt skattþrep virðisaukaskatts ásamt því að almenna þrepið lækkar 1. janúar 2019. Breytingar á að gera á hvaða starfsmenn ríkisins heyri undir kjararáð og þá leggur ráðherrann til hertar aðgerðir gegn skattaundanskotum og svikum. Einnig stendur til að fella niður ríkisábyrgð á skuldabréfum vegna fjármögnunar nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar ehf.Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið í ráðuneytinu á þriðjudaginn. Hann leggur til tvöföldun kolefnisgjalds til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.vísir/anton brinkÓttarr Proppé, heilbrigðisráðherra. Tólf mál. Til stendur að endurflytja frumvarp um heildarendurskoðun núgildandi lyfjalaga með tilliti til stefnumörkunar og þeirra breytinga sem orðið hafa á Evrópulöggjöfinni í þeim tilgangi að tryggja landsmönnum nægilegt framboð af nauðsynlegum lyfjum með sem hagkvæmastri dreifingu þeirra á grundvelli eðlilegrar samkeppni og í samræmi við þær reglur sem gilda á hinu Evrópska efnahagssvæði. Þá stendur til að móta lög og reglur um svokallaðar rafrettur. Með frumvarpi heilbrigðisráðherra verður settur heildstæður rammi um sölu, neyslu og annað tengt rafrettum.Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra. Tíu mál. Stærsta mál menntamálaráðherra er að líkindum frumvarp til nýrra heildarlaga um Lánasjóð íslenskra námsmanna.Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. 24 mál. Stefnt er að því að breyta sveitarstjórnarlögum til að afnema skyldu Reykjavíkurborgar til að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í a.m.k. 23 við næstu sveitarstjórnarkosningar í maí 2018. Frekari breytingar á lögunum eru hugsanlegar í kjölfar vinnu starfshóps um stöðu og framtíð sveitarstjórnarstigsins. Með frumvarpi til breytinga á lögum um póstþjónustu á að afnema einkarétt ríkisins á póstþjónustu í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins. Jafnframt þarf að tryggja aðgang aðila að lágmarkspóstþjónustu.Jón Gunnarsson, samgönguráðherra..vísir/pjeturÞá er á að fara fram heildarendurskoðun á umferðarlögum til að auka umferðaröryggi með því að færa ákvæði eldri laga í nútímalegra horf, búa til lagabálk sem er ítarlegri og skilvirkari en gildandi umferðarlög, skýra óskýr ákvæði laganna og hafa við þá vinnu öryggissjónarmið og bætta umferðarmenningu að leiðarljósi. Frumvarp þess efnis verður lagt fram í desember.Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ellefu mál. Ráðherrann leggur meðal annars til breytingar á byggðakvóta og þá er ætlunin að leggja til frumvarp um lagaumhverfi fiskeldis eftir að skoðun á tillögum starfshóps lýkur. Þá stendur til að endurskoða lög um Framleiðnisjóð landbúnaðarins í heild sinni.Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra. Átján mál. Á þingmálaskrá umhverfisráðherra er meðal annars þingsályktunartillaga um vernd og nýtingu landsvæða. Um er að ræða endurflutta tillögu frá síðasta þingi sem byggist á tillögum verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaráætlunar sem skilað var til ráðherra í september í fyrra.Björt Ólafsdóttir og samherji hennar úr Bjartri framtíð, Óttar Proppé.Vísir/VilhelmÞá hyggst ráðherrann leggja fram svonefnda hvítbók um náttúruauðlindir Íslands í febrúar. Áætlað er að skýrslan nýtist til að auka skilning á þeim náttúruauðlindum sem Ísland býr yfir og styrki forsendur fyrir ákvarðanatöku um stjórnun, vernd og sjálfbæra nýtingu þeirra.Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. 25 mál. Flest málin sem eru á dagskrá utanríkisráðherra eru tillögugur um staðfestingu á breytingum á EES-samningnum sem sameiginleg EES-nefnd tók ákvörðun um. Á lista ráðherrans er einnig tillaga um að fullgilda umdeildan fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Filippseyjar. Samningurinn hefur verið gagnrýndur í ljósi ástands mannréttindamála á eyjunum undir stjórn Rodrigo Duterte, forseta, sem hefur háð blóðugt stríð gegn fíkniefnum í landinu. Þá leggur utanríkisráðherra til frumvarp til laga um stofnun Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Undir stofnunina myndu falla fjórir skólar sem nú starfa á vegum Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, þ.e. jarðhita-, sjávarútvegs-, landgræðslu- og jafnréttisskólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
Alþingi Fjárlagafrumvarp 2018 Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Fleiri fréttir Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Sjá meira