Bosnía valtaði yfir Gíbraltar

Íþróttadeild skrifar
Edin Dzeko skoraði tvö mörk fyrir Bosníu í leiknum
Edin Dzeko skoraði tvö mörk fyrir Bosníu í leiknum Vísir/Getty
Bosníumenn unnu öruggan 0-4 sigur á Gíbraltar á útivelli í H-riðli undankeppni HM í Rússlandi 2018.

Edin Dzeko opnaði markareikninginn fyrir Bosníu á 35. mínútu og hann skoraði einnig síðasta mark Bosníu eftir 85. mínútur.

Danijel Milicevic og Danijel Milicevic skoruðu hin mörkin fyrir Bosníu.

Þorvaldur Árnason dæmdi þennan leik og gaf hann eitt spjald í leiknum, á Ervin Zukanovic eftir 28. mínútna leik. Honum til aðstoðar voru Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Gunnar Jarl Jónsson var fjórði dómari.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira