Spánverjar áttu ekki í vandræðum með Ítali

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Úr fyrri leik liðanna á Ítalíu.
Úr fyrri leik liðanna á Ítalíu. vísir/getty
Spánverjar unnu 3-0 sigur á Ítalíu í stórleik umferðarinnar í G-riðli undankeppni Heimsmeistaramótsins í Rússlandi.

Isco skoraði tvisvar í fyrri hálfleik áður en Alvaro Morata gerði út um leikinn á 77. mínútu.

Spánverjar eru nú á toppi riðilsins með 19 stig þegar þrír leikir eru eftir. Sigurinn fór langt með að tryggja Spánverjum sæti sitt í lokakeppninni, en þeir verða að teljast sigurstranglegri í þeim leikjum sem þeir eiga eftir. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira