Tyrkir unnu Króata | Ísland og Króatía jöfn á toppnum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. september 2017 20:30 Tyrkir unnu sterkan sigur í kvöld. vísir/getty Tyrkir unnu 1-0 sigur á Króatíu í I-riðli undankeppni Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í kvöld. Tyrkir eru því komnir með 14 stig, eins og Úkraína, en fara upp fyrir þá í þriðja sætið á markatölu. Úrslitin þýða að Íslendingar eru jafnir Króötum að stigum á toppi riðilsins, en Króatar eru með betri markatölu og halda því toppsætinu. Cenk Tosun, leikmaður Besiktas í heimalandinu, skoraði sigurmarkið fyrir Tyrki á 75. mínútu.Í hinum leik riðilsins vann Finnland 0-1 sigur á Kósóvó. Teemu Pukki skoraði mark Finna á 83. mínútu. Sú úrslit höfðu engin áhrif á stöðu riðilsins, liðin eru í 5. og 6. sæti með enga möguleika á því að komast í umspilið. HM 2018 í Rússlandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti