Konurnar í Sílikon-dalnum rjúfa þögnina: Kynferðisleg áreitni valdamikilla karla hluti af kúltúrnum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. júlí 2017 09:00 Travis Kalanick, stofnandi Uber, sagði upp í júní í kjölfar bylgju hneykslismála þar sem kynferðisleg áreitni var fyrirferðarmikil. vísir/getty
Svo virðist sem að það sé að verða breyting í Sílikon-dalnum í Kaliforníu þar sem konurnar sem þar starfa eða hafa starfað þar rjúfa nú þögnina ein af annarri og segja frá kynferðislegri áreitni sem þær hafa orðið fyrir af hálfu yfirmanna sinna eða annarra valdamikilla karlmanna í dalnum. Frásagnir kvennanna hafa orðið til þess að einhverjir þessara karla hafa verið reknir eða sjálfir sagt upp en á meðal þeirra eru valdamiklir fjárfestar sem kvenkyns frumkvöðlar hafa þurft að leita til eftir fjármagni. Mörgum er eflaust í fersku minni bloggfærsla sem fyrrverandi starfsmaður Uber, Susan Fowler, birti í febrúar á þessu ári.Fowler starfaði sem verkfræðingur hjá Uber í rúmt ár, frá nóvember 2015 til desember 2016, en í bloggfærslunni lýsti hún kynferðislegri áreitni sem hún kvaðst hafa orðið fyrir af hendi yfirmanns síns nánast allan tímann sem hún starfaði hjá fyrirtækinu. Í kjölfarið á bloggfærslu Fowler stigu fleiri konur fram sem starfað höfðu hjá Uber og lýstu sams konar upplifun af kynferðislegri áreitni af hálfu samstarfsmanna og yfirmanna. Fyrirtækið fékk þá utanaðkomandi aðila til að rannsaka ásakanirnar, þar á meðal Eric Holder, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, og leiddu niðurstöður rannsóknarinnar til þess að tuttugu starfsmenn Uber voru reknir frá fyrirtækinu.Sílikon-dalurinn í Kaliforníu er höfuðborg tæknigeirans ef svo má að orði komast en höfuðstöðvar fyrirtækja á borð við Google, Apple og Facebook eru staðsettar í dalnum.vísir/gettyKarllægt starfsumhverfi og þaggað niður í konunum Travis Kalanick, framkvæmdastjóri og stofnandi Uber, sagði svo af sér í júní eftir þrýsting frá hluthöfum en ásakanir um kynferðislega áreitni er ekki eina hneykslismálið sem komið hefur upp hjá fyrirtækinu síðustu mánuði. Segja má að bloggfærsla Fowler og það hvernig tekið var á málinu hjá Uber sé einsdæmi hjá tæknifyrirtæki í Sílikon-dalnum og merki um að eitthvað sé að breytast. Löngum hefur verið vitað að starfsumhverfið í dalnum er afar karllægt og kynferðisleg áreitni valdamikilla karla í garð kvenna eins og hluti af menningunni. Það hefur hins vegar verið þaggað niður í þeim konum sem leitað hafa til yfirmanna og stjórna tæknifyrirtækjanna og lýsti Fowler til að mynda því í bloggfærslu sinni hvernig illa hefði verið tekið í kvartanir hennar hjá Uber á sínum tíma. Það var ekki fyrr en hún steig fram opinberlega sem fyrirtækið gerði eitthvað.Ellen Pao fór í mál við vinnuveitanda sinn og stefndi honum fyrir kynjamismunun. Hún tapaði málinu en ýmsir telja að málsóknin hafi orðið til þess að varpa ljósi á stöðu kvenna í tæknigeiranum.vísir/gettyStefndi vinnuveitandanum fyrir mismunun Fowler er þó ekki fyrsta konan sem stígur fram og segir frá kynjamismunun í Sílikon-dalnum. Ellen Pao stefndi vinnuveitanda sínum, áhættufjárfestingasjóðnum Kleiner Perkins, fyrir að mismuna henni á grundvelli kynferðis.Málið kom til kasta dómstóla í febrúar 2015 og vakti gríðarlega athygli þar sem það þótti varpa ljósi á stöðu kvenna sem starfa í Sílikon-dalnum. Það fór þó svo að Pao tapaði málinu en ýmsir telja að málsókn hennar hafi orðið til þess að opna umræðuna um kynjamisrétti í tæknigeiranum og þannig verið öðrum konum hvatning til þess að stíga fram. Til að mynda Susan Fowler, sem varð síðan enn öðrum konum hvatning til að segja frá reynslu sinni.Dave McClure, stofnandi 500 Startups, var sakaður um kynferðislega áreitni af sex konum. Hann sagði upp hjá nýsköpunarmiðstöðinni í kjölfarið.vísir/epaVar ekki viss um hvort hann ætti að ráða hana eða reyna við hana Þannig stigu meira en tuttugu konur fram og ræddu við New York Times um kynferðislega áreitni og annað kynjamisrétti í Sílikon-dalnum en grein byggð á viðtölunum við þær birtist á vef dagblaðsins í liðinni viku. Ein þeirra er frumkvöðullinn Sarah Kunst sem átti í samskiptum árið 2014 við Dave McClure, fjárfesti og stofnanda nýsköpunarmiðstöðvarinnar 500 Startups, vegna mögulegs starfs hjá miðstöðinni. Í Facebook-skilaboðum sem McClure sendi Kunst á meðan á ráðningarferlinu stóð sagði hann við hana að hann væri ekki viss um hvort hann ætti að ráða hana í vinnu eða reyna við hana. Kunst gaf lítið fyrir þessi skilaboð McClure en lét samstarfsmann hann vita. Hún heyrði svo ekki meira frá McClure en það er skemmst frá því að segja að hann sagði starfi sínu lausu hjá 500 Startups fyrir um mánuði síðan eftir að sex konur stigu fram og sökuðu hann um áreitni. McClure sendi svo frá sér afsökunarbeiðni undir yfirskriftinni „Ég er ógeð, fyrirgefið mér.“Justin Caldbeck, fjárfestir, hefur viðurkennt að hafa áreitt konur í gegnum tíðina.youtubeViðurkenndi að hafa áreitt konur og sagði upp í kjölfarið Þá er í grein New York Times einnig fjallað um Justin Caldbeck sem starfað hefur hjá ýmsum áhættufjárfestingasjóðum í Sílikon-dalnum undanfarin ár.Hann viðurkenndi í júní að hafa áreitt konur í tæknigeiranum kynferðislega eftir að nokkrar konu komu fram og sögðu frá samskiptum sínum við hann. Þá sagði hann upp starfi sínu hjá Binary Capital-sjóðnum en hann var einn af stofnendum fyrirtækisins. Á meðal þeirra sem sögðu frá áreitni Caldbeck í sinn garð er Katrina Lake, stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Stitch Up. „Kvenkyns frumkvöðlar eru mikilvægur hluti af Sílikon dalnum. Það er mikilvægt að afhjúpa þessa hegðun sem fjallað hefur verið um síðastliðnar vikur svo að við sem samfélag getum þekkt þessi vandamál og tekið á þau,“ sagði Lake. Leiðir hennar og Caldbeck lágu saman hjá Lightspeed fjárfestingasjóðnum sem fékk kvartanir vegna Caldbeck á meðan hann starfaði þar.Frá ráðstefnu Google í Sílikon-dalnum á dögunum en tæknifyrirtækin sem starfa þar trekkja að fjölda ferðamanna á ári hverju en heimsþekkt vörumerki mörg hver.vísir/gettySpurði af hverju kærastinn mætti kyssa hana en ekki hann Þá sagði Lindsay Meyer, frumkvöðull í San Francisco, frá viðskiptum sínum við Caldbeck en hann lagði 25 þúsund dollara í nýsköpunarfyrirtæki hennar. Það gaf honum ástæða til að senda henni stöðugt smáskilaboð þar sem hann spurði hana meðal annars hvort hún laðaðist að honum og hvers vegna hún vildi frekar kyssa kærastann sinn en hann. Þá kleip Caldbeck hana stundum og kyssti hana. Hvort að fleiri konur í Sílikon-dalnum muni stíga fram á næstu misserum og hvort að fleiri karlar hverfi af sjónarsviðinu í kjölfarið verður að koma í ljós en flestir virðast að minnsta kosti líta svo á að eitthvað sé að breytast í menningunni í hinum karllæga tækni- og nýsköpunargeira.Byggt á umfjöllun Quartz, The New York Times og Guardian.
Tengdar fréttir Stofnandi Uber víkur vegna þrýstings frá hluthöfum Akstursþjónustan Uber hefur átt í vök að verjast vegna fjölda hneykslismála undanfarið. Hluthafar fyrirtækisins ýttu framkvæmdastjóranum Travis Kalanick út um dyrnar í gær. 21. júní 2017 10:21 Uber rannsakar kynferðislega áreitni innan fyrirtækisins eftir ásakanir fyrrverandi starfsmanns Travis Kalanick, framkvæmdastjóri leigubílaþjónustunnar Uber, hefur fyrirskipað rannsókn á kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins. 20. febrúar 2017 12:41 Uber áfram til vandræða Málefni leigubílaþjónustunnar hafa verið mikið til umræðu síðustu misseri eftir að Susan Fowler, fyrrverandi starfsmaður Uber, sakaði yfirmenn sína um kynferðislega áreitni. 15. júní 2017 07:00 Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Sjá meira
Stofnandi Uber víkur vegna þrýstings frá hluthöfum Akstursþjónustan Uber hefur átt í vök að verjast vegna fjölda hneykslismála undanfarið. Hluthafar fyrirtækisins ýttu framkvæmdastjóranum Travis Kalanick út um dyrnar í gær. 21. júní 2017 10:21
Uber rannsakar kynferðislega áreitni innan fyrirtækisins eftir ásakanir fyrrverandi starfsmanns Travis Kalanick, framkvæmdastjóri leigubílaþjónustunnar Uber, hefur fyrirskipað rannsókn á kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins. 20. febrúar 2017 12:41
Uber áfram til vandræða Málefni leigubílaþjónustunnar hafa verið mikið til umræðu síðustu misseri eftir að Susan Fowler, fyrrverandi starfsmaður Uber, sakaði yfirmenn sína um kynferðislega áreitni. 15. júní 2017 07:00