Innlent

Manndráp í Mosfellsdal: Endurlífgun reynd á vettvangi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í gærkvöldi.
Frá vettvangi í gærkvöldi. vísir/eyþór
Endurlífgun var reynd á vettvangi í Mosfellsdal í gærkvöldi á manni á fertugsaldri sem varð fyrir hrottalegri líkamsárás við Æsustaði um kvöldmatarleytið. Endurlífgun bar ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á Landspítalanum í Fossvogi.

Sex manns voru handteknir í um klukkan 19 í gærkvöldi, fimm karlar og ein kona. Á meðal hinna handteknu eru Jón Trausti Lúthersson, stofnandi mótorhjólaklúbbsins Fáfnis, og bræðurnir Marcin Wieslaw Nabakowski og Rafal Marek Nabakowski sem í febrúar hlutu dóm fyrir skotárás í Breiðholtinu í ágúst síðastliðnum.

Ákvörðun tekin um gæsluvarðhald síðar í dag

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að allir hinna handteknu hafi verið yfirheyrðir í gær og stóðu yfirheyrslur langt fram eftir nóttu.

„Það eru allir enn í haldi sem voru handteknir og ákvörðun verður tekin síðar í dag um hvort krafist verði gæsluvarðhalds og þá yfir hverjum,“ segir Friðrik Smári.

Aðspurður hversu mörg vitni voru að árásinni segist Friðrik Smári ekki hafa tölu á því en nokkur vitni voru yfirheyrð í gær vegna málsins. Friðrik Smári kveðst ekki vita hvort vitnum hafi verið boðin áfallahjálp.

Pallbíl ekið yfir fætur mannsins

Friðrik Smári segir að það hafi fleiri en einn hringt á Neyðarlínuna og óskað eftir aðstoð lögreglu og sjúkraliðs vegna málsins. Þá vill Friðrik Smári ekki svara því hvort málið tengist handrukkun en segir rannsókn málsins meðal annars miða að því að upplýsa hvað var að baki árásinni og hvernig atburðarásin var.

Vísir greindi frá því í morgun að allt bendi til þess að líkamsárásin hafi verið handrukkun. Samkvæmt heimildum mætti hópur fólks að heimili hins látna á sjöunda tímanum og barði að dyrum. Kona mannsins fór til dyra en þá var óskað eftir því að ná tali af manninum hennar.

Í framhaldinu á fólkið að hafa ráðist á manninn með járnkylfum, tekið hann hálstaki, hendur settar fyrir aftan bak og höggin látin dynja á manninum. Þá lýsa vitni því að amerískum pallbíl, sem lögregla fjarlægði af vettvangi síðar um kvöldið, hafi verið ekið yfir fætur mannsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×