Utah sló Clippers út | Boston komið yfir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2017 22:18 Það þurfti sjö leiki til að finna sigurvegara í viðureign Clippers og Utah. vísir/getty
Utah Jazz tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA með sigri á Los Angeles Clippers, 91-104, í oddaleik. Utah mætir Golden State Warriors í undanúrslitunum. Sjö leikmenn Utah skoruðu 10 stig eða meira í leiknum í kvöld. Gordon Hayward var þeirra stigahæstur með 26 stig. George Hill og Derrick Favors komu næstir með 17 stig hvor. Sá síðarnefndi tók einnig 11 fráköst. DeAndre Jordan var atkvæðamestur hjá Clippers með 24 stig og 17 fráköst. Jamal Crawford kom með 20 stig af bekknum en Chris Paul hefur oft spilað betur. Leikstjórnandinn snjalli var með 13 stig úr 19 skotum og gaf níu stoðsendingar.Boston er komið yfir gegn Washington.vísir/gettyBoston Celtics tók forystuna í einvíginu við Washington Wizards með 123-111 sigri í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Isiah Thomas var að venju atkvæðamestur í liði Boston með 33 stig og níu stoðsendingar. Jae Crowder skoraði 24 stig og Avery Bradley var með 18 stig, fimm fráköst, fjórar stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Bradley Beal var með 27 stig í liði Washington og John Wall skoraði 20 stig og gaf 16 stoðsendingar. Wall varð þar með aðeins annar maðurinn í sögu úrslitkeppninnar sem skorar 20 stig og gefur 15 stoðsendingar fyrir gestalið í Boston. Isiah Thomas, fyrrum leikmaður Detroit Pistons, afrekaði það einnig árið 1985.
NBA Mest lesið „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar Íslenski boltinn „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Besta sætið: Hættið þessu rugli og fagnið mörkunum ykkar Sport Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Enski boltinn Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann Golf Fleiri fréttir Keflavík - KR | Allt undir hjá heimakonum „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Læknirinn yfirgefur höllina „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Tryggvi tókst á við Barcelona Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Elvar og Martin í miklu stuði Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum „Allir að tikka inn og vörnin var bara framúrskarandi“ Hamar/Þór með stórsigur í fyrsta úrslitaleiknum Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 2-1 | Deildarmeistararnir taka forystuna í einvíginu „Galið“ að Stjörnumenn spili sig sem fórnarlömb Sonurinn sendi á pabbann fyrir sögulega körfu Botnlanginn fjarlægður úr Embiid Grindavík sópaði Val í sumarfrí KR - Keflavík 94-80 | Thomas tók yfir í fjórða leikhluta Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Uppgjörið:Njarðvík - Tindastóll 88-87| Dramatískar lokasekúndur þegar Njarðvík sópaði Tindastól Vildu alls ekki fara í sumarfrí en Haukar höfðu betur Martin úr leik í Meistaradeildinni Tryggvi á leið í úrslitaleik annað árið í röð Dallas Mavericks segja ekkert til í ásökunum þjálfara Lakers Finnur Freyr komst loksins fram úr Friðriki Inga Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Sjá meira